Hækka fæðingarorlofsgreiðslur

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um hækkun á greiðslum til foreldra í fæðingarorlofi frá 1. janúar 2019. Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka um 80.000 krónur á mánuði.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­­son, félags- og jafn­­rétt­is­­mála­ráð­herra, hefur und­ir­­ritað reglu­­gerð um hækkun á greiðslum til for­eldra í fæð­ing­­ar­or­lofi frá 1. jan­úar 2019. Óskertar greiðslur hækka um 80.000 krón­­ur, úr 520.000 krónur í 600.000 krónur á mán­uði. Í til­­kynn­ingu frá Vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­inu segir Ásmundur Einar hækk­­un­ina mik­il­væga og sýna í verki áherslur stjórn­­­valda á að efla stuðn­­ing við börn og barna­­fjöl­­skyld­­ur.

„Við hækk­­uðum hámarks­­greiðsl­­urnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtals­verðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekju­lágum for­eldrum til góða,“ seg­ir Ás­mund­ar Ein­­ar.

Horfa til þess að lengja ­fæð­ing­ar­or­lof­ið 

Í til­­kynn­ing­unni segir einnig að áfram verði unnið að því að styðja betur við for­eldra í fæð­ing­­ar­or­lofi og þar sé meðal ann­­ars horft til þess að lengja fæð­ing­­ar­or­lof­ið. „Þetta er mik­il­vægt vel­­ferð­­ar­­mál og eins vil ég nefna sér­­stak­­lega að þetta er tví­­­mæla­­laust lóð á vog­­ar­­skálar auk­ins kynja­­jafn­­rétt­­is.“

Aukin fram­lög rík­­is­ins vegna hækk­­unar hámarks­­greiðslna fæð­ing­­ar­or­lofs 1. jan­úar næst­kom­andi eru áætluð um 1,8 millj­­arður króna á ársgrundvelli. 

Auglýsing

Hækk­unin lögð til fyrir rúmum tveimur árum

Að hækk­a há­marks­greiðsl­ur úr ­fæð­ing­ar­or­lofs­sjóð­ur í 600 þús­und krónur var lögð til fyrir tveimur og hálfu ári. Það var ein af til­lögum starfs­hóps um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum sem skil­aði til­lögum sínum til Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, þáver­and­i ­fé­lags- og hús­næð­is­­mála­ráð­herra, þann 11. mars 2016. Þá vor­u há­marks­greiðsl­ur 370 þús­und krónur á mán­uð­i. 

Starfs­hóp­ur­inn lagði einnig til að fæð­ing­­ar­or­lofið yrði lengt í tólf mán­uði úr níu mán­uð­um, þannig að hvort for­eldri um sig eigi fimm mán­aða rétt til orlofs og tveir mán­uðir verði sam­eig­in­­legur réttur sem annað hvort getur not­að.   

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent