Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu tveggja svæða. Annað er í Þjórsárdal og hitt er Reykjatorfan í Ölfusi. Áformin eru annars vegar kynnt í samstarfi við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og forsætisráðuneytið og hins vegar í samstarfi við sveitarfélagið Ölfus, Hveragerðisbæ og umráðendur ríkisjarða. Um er að ræða fyrstu friðlýsingar sem falla undir viðkvæm svæði undir álagi ferðamanna í sérstöku átaki í friðlýsingum.
Þetta kemur fram í frétt umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Friðlýsingunni er ætlað að varðveita sérkenni og einkenni landslagsins, fagurfræðilegt og menningarlegt gildi þess. Tekið er fram að ef um sé að ræða svæði þar sem hefðbundnar nytjar eru forsenda fyrir því að varðveita einkenni landslagsins skuli friðlýsingin jafnframt miða að því að tryggja að þeim verði haldið við.
Svæðið í Þjórsárdal nær til meðal annars Gjárinnar, Háafoss og nágrennis. „Gjáin hefur verið vinsæll ferðamannastaður og er helsta aðdráttaraflið óröskuð náttúra og friðsæld. Háifoss, Glanni og Stöng eru einnig fjölsóttir ferðamannastaðir í Þjórsárdal,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Reykjatorfan liggur upp af Hveragerði innan marka sveitarfélagsins Ölfus. Landslag svæðisins einkennist af jarðhita og er þar fjöldi hvera og lauga, bergganga, brota og framhlaupa. Innan marka svæðisins eru tveir dalir, Reykjadalur og Grænsdalur.
Enn fremur kemur fram í fréttinni að mikill fjöldi ferðamanna heimsæki Reykjadal á hverju ári en svæðið er meðal vinsælustu útivistarsvæða í Ölfusi og er undir miklu álagi. „Grænsdalur liggur samsíða Reykjadal. Hann er vel gróinn og þar er að finna gróskumikið votlendi og jarðhitasvæði. Er þar meðal annars að finna mýrarhveravist, móahveravist og hveraleirsvist auk jarðhitalækja. Svæðið er að mestu óraskað og ekkert stígakerfi er til staðar til að stýra umferð gesta frá viðkvæmum svæðum og þeim sem beinlínis er hættulegt að fara um vegna jarðhita.“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir að með vaxandi fjölda ferðamanna hér á landi hafi ákveðnir staðir óhjákvæmilega orðið fyrir meira álagi en aðrir. Uppbygging innviða og stýring ferðamanna sé afar brýn á slíkum svæðum og um leið að stutt sé við svæðin með landvörslu. Friðlýsing sé þar lykilatriði því þannig sé hægt að takast á við þessi krefjandi verkefni með heildstæðum hætti. „Það er því ánægjulegt að sjá framsýni Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Sveitarfélagsins Ölfuss, Hveragerðisbæjar og heimafólks í málefnum þessara mikilvægu náttúruperla í Þjórsársdal og í Reykjadal,“ segir hann.