Forsætisráðherra: Að vinna með þeim sem eru ósammála manni gerir mann sterkari

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að sjaldan hafi verið mikilvægara að sýna fram á að hægt sé að taka tillit til ólíkra sjónarmiða, miðla málum og vinna samhent að sameiginlegum markmiðum þvert á flokka.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir það sjaldan hafa ver­ið ­mik­il­væg­ara en nú að sýna fram á að hægt sé að taka til­lit til ólíkra sjón­ar­miða, í aðsendri grein í Tíma­mót­um, auka­blaði Morg­un­blaðs­ins. Í grein­inni fjallar Katrín um að blikur séu á lofti í heims­mál­unum og sjá megi að á alþjóða­vett­vangi sé til­hneig­ing til að loka sig af og byggja upp múra á milli sín og „hinna“. Hún segir að ein leið til þess að hafna þessum múrum sé að leyfa sér að vinna með þeim sem séu manni ósam­mála og bendir meðal ann­ars á sam­vinnu ólíkra flokka í rík­is­stjórn henn­ar. 

„Ein helsta gagn­rýni sem höfð hef­ur verið uppi á þá rík­­is­­stjórn sem nú sit­ur hef­ur ekki snú­ist um verk henn­ar held­ur að hún hafi yf­ir­­leitt verið mynduð og að ólík­­ir flokk­ar hafi náð sam­an um stjórn lands­ins. En mín reynsla er sú að það að vinna með þeim sem eru manni ósam­­mála geri mann stærri,“ segir Katrín.

Aðrar leiðir en múrar og hindr­anir

Í grein sinni fjallar Katrín um hvernig heims­mynd þjóða mót­ast oft af ótt­anum við hina og hvernig sú til­hneig­ing að ein­angra sig frá „hin­um“ ógni hefð­bundnum skiln­ingi okkar á mann­rétt­ind­um. Hún segir að múr­arnir fjar­lægi fólk frá hvert öðru og ali á tor­tryggn­i. „Múr­arnir eru ekki allir áþreif­an­leg­ir. Suma sjáum við alls ekki á ver­ald­ar­vefnum en þeir skipta okkur upp í ólík berg­máls­her­bergi þar sem við tölum hvert við annað og ekki við hin sem eru ólík okk­ur.“

Auglýsing

Katrín segir að til séu aðrar leiðir en að byggja múra og reisa hindr­an­ir. Ein leið sé til dæmis að ­byggja ­upp ákveðna sam­fé­lags­lega inn­viði og tryggja þannig að allir eigi eitt­hvað í sam­fé­lag­inu. Hún bendir þar á mik­il­vægi almanna­þjón­ustu og að sú þjón­usta hafi því hlut­verki að gegna að tvinna saman ólíka þræði sam­fé­lags­ins og tryggja að allir sitji við sama borð. „En auk heldur tryggir hún líka að við séum öll virkir þátt­tak­endur í sama sam­fé­lagi sem er einmitt for­senda þess að lýð­ræðið dafni. Þess vegna er hún ein af und­ir­stöðum lýð­ræð­is­ins og brýtur niður múra. Tryggir að við eigum sam­fé­lag­ið,“ segir Katrín.

Sjaldan mik­il­vægra að sýna fram á hægt sé að taka til­lit til ólíkra sjón­ar­miða

Katrín segir í grein sinni að önnur leið sé að ólíkir aðilir vinni sam­hentir að sam­eig­in­legum mark­mið­um. Hún bendir þar á að reglu­leg­t ­sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins hafi meðal ann­ars snú­ist um að auka skiln­ing á milli þeirra sem sitja við borð­ið.

Enn­fremur segir hún frá því hvernig ein helsta gagn­rýnin á núver­andi rík­is­stjórn hafi ekki snú­ist um verk hennar heldur að hún hafi yfir­höfuð verið mynd­uð. „Stjórn­mála­menn með sundr­andi orð­ræðu sem miðar að því að skipa fólki í hópa og hengja á þá jákvæða og nei­kvæða ­merki­miða allt eftir því hvað þjónar þeirra hags­munum eru stjórn­mála­menn sem vilja byggja múra. Mark­mið þeirra er gjarnan að sundra og grafa undan þeim lýð­ræð­is­legu gildum sem hafa tryggt stór­stígar fram­farir í mann­rétt­inda­mál­um, hag­sæld og örygg­i,“ segir Katrín.

„Sjaldan hefur það því verið mik­il­væg­ara að sýna fram á að það er hægt að taka til­lit til ólíkra sjón­ar­miða, miðla málum og vinna sam­hent að sam­eig­in­legum mark­mið­um, þvert á flokka, sam­fé­lag­inu öllu til heilla,“ segir Katrín að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent