Sólveig Anna segir verkalýðsforystuna ekki leggja áherslu á skattalækkanir

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að verkalýðsforystan leggi ekki áherslu á skattalækkanir heldur leggi hún mikla áherslu á að leiðrétta það sem Stefán Ólafsson hefur kallað hina Stóru skattatilfærslu.

Sólveig Anna Jónsdóttir
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, segir það mis­skiln­ing að verka­lýðs­forrysta ­leggi áherslu skatta­lækk­an­ir. Hún segir að í stað­inn leggi hún áherslu á rétt­látt skatt­kerfi sem virki í alvöru sem jöfn­un­ar­tæki. Hún leið­rétt­ir mis­skiln­ing­inn í stöðu­færslu á Face­book-­síðu sinni í morgun og vitnar þar í orð Þór­ólfs Matth­í­as­son­ar, pró­fess­ors í hag­fræði við Háskóla Íslands, sem sagði í morg­un­út­varpi Rásar 1 í morgun að nýja verka­lýðs­for­ystan leggi áherslu á skatta­lækk­anir og að það gangi þvert á nor­rænar hug­myndir um skatt­heimt­u. 

Leggja áherslu á að leið­rétta Stóru skatta­til­færsl­una

­Sól­veig segir í stöðu­færslu sinni að „hin svo­kall­aða nýja verka­lýðs­for­ysta“ leggi mikla áherslu á að leið­rétta það sem Stefán Ólafs­son hefur kallað Stóru skatta­til­færsl­una. Sól­veig segir að skatta­til­færslan snú­ist um að skatt­byrði þeirra sem minnst hafi á milli hand­anna hafi verið mark­visst aukin meira og minna síð­ust tvo ára­tugi þannig að ríf­lega 50 pró­sent af lág­marks­launum séu nú skatt­lögð. Ásamt því hafi barna­bætur minnkað veru­lega og þeim sem þær fá fækkað og að sama megi segja um hús­næð­is­bæt­ur. 

Sól­veig segir að þetta hafi verið gert í þeim til­gangi að létta skatt­byrð­i á fjár­magnstekju­eig­endur og þau sem mest hafa á milli hand­anna. Hún segir að þau sem mest hafi á milli hand­anna búi nú við fárán­lega und­an­láts­semi en af fjár­magnstekj­u­m er aðeins greiddur 22 pró­sent skatt­ur. „Þetta eru stað­reyndir og þessu viljum við breyta. Við vilj­u­m td. að fjár­mags­tekju­skatt­ur verði hækk­aður veru­lega svo að hann verði sams­konar og hann er á Norð­ur­lönd­un­um,“ segir Sól­veig enn frem­ur.

Auglýsing

„Þannig að það er rangt að við leggjum mikla áherslu á skatta­lækk­an­ir; við leggjum alla áherslu á rétt­látt skatt­kerfi sem virkar í alvöru sem jöfn­un­ar­tæki og gerir líf vinnu­aflsins (og þeirra sem af ein­hverjum ástæðum geta ekki unn­ið) betra og auð­veld­ara og við leggjum alla áherslu á að hin auð­ugu í sam­fé­lag­inu standi eðli­leg skil á sínu til að halda hér uppi vel­ferð­ar­sam­fé­lagi að nor­rænum sið, “ segir Sól­veig að lokum í stöðu­færslu sinn­i. 

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við HÍ sagði rétt áðan í morg­un­út­varpi Rásar 1 að "nýja verka­lýðs­for­ystan"...

Posted by Sól­veig Anna Jóns­dóttir on Wed­nes­day, Janu­ary 2, 2019

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent