Félag atvinnurekenda telur að vinnubrögð velferðarráðuneytisins vegna kostnaðarútreikninga að baki rafrettueftirlitsgjalda sé tilefni til málsóknar á hendur ráðherra. Velferðarráðuneytið hefur engar upplýsingar veitt um kostnaðarútreikninga að baki 75.000 króna gjaldi, sem lagt er á hverja tilkynningu um markaðssetningu á rafrettum og tengdum vörum. Í svari við erindi FA um gjaldið kom fram að ráðuneytið hefði til skoðunar hvernig gjaldið endurspeglar kostnað og að ráðuneytið áætli að ljúka þeirra skoðun í mars. Gjaldtakan hófst hins vegar í september í fyrra.
Til skoðunar hjá ráðuneytinu hvernig gjaldið endurspeglar kostnað
Í yfirlýsingu frá Félagi atvinnurekenda segir að forsaga málsins sé sú að heilbrigðisráðherra setti reglugerð um rafrettur í byrjun september, en samkvæmt henni ber framleiðendum og innflytjendum rafrettna að tilkynna markaðssetningu varanna til Neytendastofu. Í upphaflegri gerð reglugerðarinnar var ekkert um fjárhæð eftirlitsgjaldsins sem Neytendastofa tekur, en þegar reglugerðin tók gildi var komið inn í hana ákvæði um 75.000 króna gjald fyrir hverja tilkynningu, samkvæmt FA.
FA sendi erindi vegna reglugerðarinnar til ráðuneytisins í september á síðasta ári, engin svör bárust fyrr en félagið kvartaði til umboðsmanns Alþingis. Erindi FA var síðan svarað rétt fyrir jól og í svari ráðuneytisins segir að ráðuneytið hafi „til skoðunar hvernig gjaldið endurspeglar kostnað við móttöku tilkynninga, geymslu þeirra sem og meðhöndlun og greiningu upplýsinga sem fylgdu þeim.“ Áætlar ráðuneytið að þeirri skoðun ljúki fyrir 1. mars næstkomandi. Gjaldtakan hófst hins vegar 1. september og stendur enn.
Gjaldið sé í raun ólögmætur skattur
Félagið segir að gjaldið geti þýtt milljóna króna útgjöld fyrir marga innflytjendur og seljendur rafrettna. Í erindi FA til ráðuneytisins vorugerðar voru margvíslegar athugasemdir við vinnubrögðin við setningu reglugerðarinnar og meðal annars bent á þá meginreglu stjórnsýsluréttar að eftirlitsgjöld verði eingöngu nýtt til að standa straum af þeim kostnaði, sem af viðkomandi eftirlitsaðgerð leiðir og þurfi fjárhæð þeirra að byggjast á traustum útreikningum. Félagið gerði einnig alvarlega athugasemd við ákvörðun fjárhæðar gjaldsins.
Samkvæmt FA virtist gjaldið hafa verið byggð á ágiskun, án þess að kostnaðargreining lægi fyrir, og telur félagið gjaldið vera langt umfram raunhæfan kostnað við eftirlitið. Því segir FA að gjaldið sé í raun ólögmætur skattur. Félagið krafðist ógildingar reglugerðarinnar og bauð jafnframt fram samstarf við ráðuneytið um setningu nýrrar reglugerðar.
Virðist sem ráðuneytið ætli að reikna sig upp í gjaldið eftir á
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir í yfirlýsingunni að þetta sé að mati félagsins fullkomlega óboðleg stjórnsýsla. „Eitt er að ráðuneyti svari ekki bréfum frá samtökum fyrirtækja, sem eiga mikilla hagsmuna að gæta vegna stjórnvaldsákvarðana. Því miður er það ekki einsdæmi; við biðum í átta mánuði eftir svari frá atvinnuvegaráðuneytinu vegna annars mikilvægs máls. “
Ólafur segir það síðan fráleitt að ráðuneytið stefni á að komast að niðurstöðu um hvort að gjaldtakan sé lögmæt í byrjun mars á þessu. ári. „Gjaldtökuákvæðið hefur verið virkt frá 1. september 2018 og fyrirtækin, sem um ræðir, áttu rétt á því strax í upphafi að fá að vita að traustir kostnaðarútreikningar lægju að baki gjaldtökunni. Nú virðist sem ráðuneytið ætli að reikna sig upp í gjaldið eftirá.“
Ólafur segir því að með þessum vinnubrögðum gefi ráðuneytið fullt tilefni til málsóknar á hendur ráðherra. „Undanfarin ár hafa margir dómar fallið, þar sem ríkið hefur verið dæmt til að endurgreiða fyrirtækjum eftirlitsgjöld, sem hafa ýmist verið rangt eða ekki kostnaðargreind, eins og við blasir í þessu tilviki. Með þessum vinnubrögðum gefur ráðuneytið fullt tilefni til málsóknar á hendur ráðherra,“ segir Ólafur að lokum í yfirlýsingunni.