WOW air fellt niður flugferðir til minnst sex flugvalla

WOW air hefur að undanförnu tilkynnt farþegum að félagið hafi neyðst til að fella niður ákveðnar flugferðir. Neytendasamtökin benda farþegum á að þeir ættu að geta valið um endurgreiðslu á flugmiða eða óskað eftir því flugfélagið útvegi þeim nýtt flug.

wow air
Auglýsing

WOW a­ir hefur þurft að fella niður flug­ferðir til minnst sex flug­valla. Félagið segir að end­ur­skipu­lagn­ing leiða­kerfis og fækkun í flota skýri þess­ar ­nið­ur­fell­ing­ar. Þetta á við staði á borð við Los Ang­el­els, San Francisco, Nýju Del­í og Chicago en einnig hafa ein­staka flug til Kaup­manna­hafn­ar, ­Mílanó og London verið felld nið­ur. Ekki er vitað hversu margar ferðir hafa verið felldar niður í heild­ina. Frá þessu var greint í frétta­tíma RÚV í gær. 

End­ur­skipu­lagn­ing í rekstri

 WOW a­ir ­segir að reynst hafi flug­fé­lag­inu nauð­syn­legt að fella niður flug í ljósi end­ur­skipu­lagn­ingar á leiða­kerf­i ­fé­lags­ins og fækk­unar í flota. Flug­fé­lagið til­kynnti um mik­inn sam­drátt í rekstri flug­fé­lags­ins um miðjan des­em­ber á síð­asta ári. Fjölda starfs­manna var sagt upp, flug­vélum félags­ins var fækkað úr tutt­ugu og fjórum í ell­efu, flug­tímar WOW a­ir á Gatwick voru seldir og til­kynnt var að áfanga­stöðum yrði fækk­að. Um svip­að ­leiti, þann 14. des­em­ber var til­kynnt að banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lag­ið Indigo Partner­s ­gæti fjár­fest í félag­inu upp á allt að 75 millj­ónir dala, um 9,4 millj­arða króna.
Auglýsing
 

Far­þegar ættu að geta óskað eftir því að flug­fé­lagið útvegi þeim nýtt flug á loka­á­fanga­stað

Í svari WOW a­ir við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV segir að öllum far­þegum flug­fé­lags­ins sé boðið að fá end­ur­greitt eða velja nýjan áfanga­stað. Á vef Neyt­enda­sam­tak­anna kemur aftur á móti fram að far­þegar ættu að geta valið um end­ur­greiðslu eða óska eftir því að flug­fé­lagið útvegi þeim nýtt flug á loka­á­fanga­stað. 

Í frétt á vef Neyt­enda­sam­tak­anna í gær segir að sam­tök­unum hafi borist nokk­ur ­fjöldi fyr­ir­spurna vegna aflýs­ingar á Ind­lands­flugi og neyt­endum er því bent á reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega. Fram kem­ur að far­þegar hafi kvartað undan því að þeim hafi ein­göngu verið boðin end­ur­greiðsla á far­mið­um, ýmist í formi pen­inga eða gjafa­bréfs.

Sam­tökin benda á að rétt­indi flug­far­þega veiti far­þegum rétt á þremur val­kostum þegar flugi er aflýst.  Kost­irnir eru í fyrsta lagi að fá end­ur­greiðslu á ferð­inni, í öðru lagi að fá flug­ferð­inni breytt til þess að kom­ast á áfanga­stað eins fljótt og unnt er eða að breyta flug­leið þannig að far­þeg­inn kom­ist á áfanga­stað ­síðar meir við fyrsta hent­ug­leika. Far­þegar hafa þannig val um hvort þeir vilja fá end­ur­greiðslu á flug­mið­anum eða óska eftir því að flug­fé­lagið útvegi þeim nýtt flug til loka­á­kvörð­un­ar­stað­ar.

Eftir tvær vikur legg­ur WOW a­ir ­niður flug sitt til Nýju Delí 

Wow A­ir til­kynnti í maí á síð­asta ári að flug­fé­lagið hæfi beint áætl­un­ar­flug til Ind­lands í des­em­ber. ­Fyrir mán­uði síðan fór síðan breið­þota WOW a­ir í sína fyrstu ferð til Nýju Delí. Um borð var Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra ­sem hélt utan í til­efni af því að nú væru komnar á flug­sam­göngur á milli Íslands og Ind­lands. Stuttu seinna var síðan til­kynnt að flug­leiðin til Ind­lands yrði lögð niður 20. jan­úar næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent