Landssamband fiskeldisstöðva hefur lagt niður daglega starfsemi og eru aðildarfyrirtæki sambandsins nú orðin hluti af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Sameiginleg ákvörðun aðildarfyrirtækjanna var tekin um að óska eftir aðild að SFS á auka aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva þann 14. desember síðastliðinn. Í tilkynningu frá Landssambandinu segir að fiskeldi hér á landi hafi aukist á undanförnum árum og því hafi verkefni sambandsins orðið fleiri og fjölþættari og því sé það mat stjórnar Landssambandsins að þeim verkefnum verði betur sinnt innan vébanda Sambanda í sjávarútvegi.
Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi
Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar Landssambands fiskeldisstöðva og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, telur þetta vera rökrétt skref í þróun samtakanna og fisledis Íslands. „Það hefur verið mikil uppbygging í fiskeldi á undanförnum árum og verkefnin sem þarf að leysa úr eru orðin umfangsmeiri og kannski að sumu leyti flóknari en áður. Ég tel þetta því rökrétt skref í þróun samtakanna og fiskeldis á Íslandi, að verða hluti af samtökum sem byggjast á gömlum grunni. Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi á sama hátt og sjávarútvegurinn hefur verið um langt skeið og verða þar með enn ein stoðin undir efnahagslegri hagsæld Íslendinga. Að því munum við vinna.“ segir Einar.
Í tilkynningunni segir að ákveðið hafi verið að Einar verði hluti af teymi SFS og sinni þar verkefnum er snúa að fiskeldismálum.
Jens Garðar Helgason formaður stjórnar SFS segist fagna komu fiskeldis í samtökin. Í tilkynningunni segir Jens að nokkur fyrirtæki í fiskeldi hafi um alllangt skeið verið félagsmenn í SFS og því sé styrkur í því að fjölga þeim. „Ég hlakka til samstarfsins og hlýt að fagna komu þeirra. Það mun bæði styrkja SFS og ekki síður það góða starf sem unnið hefur verið á vegum Landssambandsins á undanförnum árum. Næstu vikur og mánuðir fara í að samþætta starfsemina undir hatti SFS og ég vonast til þess að þeirri vinnu verði lokið fyrir sumarið.“