Segja að aldrei hafi verið gefið í skyn að fjármál Flokks fólksins séu vafasöm

Stjórn Flokks fólksins hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar fjölmiðla um fjármál flokksins. Í yfirlýsingunni segir að öll fjármál Flokks fólksins hafi verið lögð árlega og skilvíslega undir skoðun löggilts endurskoðanda og Ríkisendurskoðunar.

Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins.
Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins.
Auglýsing

Stjórn Flokks fólks­ins sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag vegna umfjöll­unar í fjöl­miðlum um fjár­mál Flokks fólks­ins. Í yfir­lýs­ing­unni segir að öll fjár­mál Flokks fólks­ins hafi verið lögð fram árlega og skil­vís­lega undir skoðun lög­gilts end­ur­skoð­anda og Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, sam­kvæmt lög­um. Á­samt því hafi árs­reikn­ingar flokks­ins verið lagðir fyrir aðal­stjórn, kjörna skoð­un­ar­menn, fjár­mála- og efna­hags­mála­nefnd, fram­kvæmda­stjórn og lands­fund Flokks fólks­ins til skoð­unar og sam­þykkta áður en þeim er skilað til Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. 

„Í þessu stranga eft­ir­lits­­ferli allra hlut­að­eig­andi og of­an­­greindra aðila hafa aldrei komið fram at­huga­­semd­ir sem gefa í skyn að fjár­­­mál Flokks fólks­ins séu vafa­­söm á nokk­urn hátt,“ segir í yf­ir­lýs­ing­unni. Jafn­framt er bent á að hægt sé að sjá út­­drátt af end­­ur­­skoð­unum og sam­þykkt­um árs­­reikn­ingi flokks­ins á vef­síðu Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar og á vef­síðu Flokks fólks­ins.

Karl Gauti segir það ekki for­svar­an­legt að for­maður stjórn­mála­flokks sitji yfir fjár­reiðum hans 

Á laug­ar­dag­inn sak­aði Karl Gauti Hjalta­son, sem rek­inn var úr Flokki fólks­ins síðla árs 2018, Ingu Sæland for­manns Flokks fólks­ins um óeðli­lega fjár­mála­stjórnun í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Í grein­inni segir að hann hafi marg­ít­rekað látið gagn­rýni sína á getu Ingu Sæland, for­manns flokks­ins, til að leiða Flokk fólks­ins í ljós áður en slík gagn­rýni náð­ist á upp­töku á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Auglýsing

Í grein­inni gagn­rýnir Karl Gauti að Inga Sæland sitji fyrir fjár­reiðum flokks­ins og hann seg­ist ekki geta sætt­sig við að opin­beru fé sé ráð­stafað til fjöl­skyldu­með­lima stjórn­mála­leið­toga. „Ég tel ekki for­svar­an­­legt að for­­maður stjórn­­­mála­­flokks sitji yfir fjár­­reiðum hans með því að vera jafn­­framt pró­kúru­hafi og gjald­keri flokks­ins. Þá get ég heldur ekki sætt mig við að opin­beru fé sé varið til launa­greiðslna í þágu nán­­ustu fjöl­­skyld­u­­með­­lima stjórn­­­mála­­leið­­toga. Lands­lög kveða skýrt á um vand­aða með­­­ferð þeirra fjár­­muna sem stjórn­­­mála­­flokkar þiggja úr almanna­­sjóðum og er mik­il­vægt að eftir þeim sé far­ið,“ segir Karl Gauti.

Ólafur ÍsleifssonÍ Morg­un­blað­inu í dag tekur Ólafur Ísleifs­son, fyrr­ver­andi þing­maður Flokks fólks­ins og nú óháður þing­mað­ur, undir gagn­rýni Karl Gauti á hend­ur ­for­manni flokks­ins. Ólafur segir að þetta sé gagn­rýni sem þeir hafi báðir haft uppi og seg­ist sjálfur hafa gert athuga­semdir við for­mann flokks­ins um fjár­mál­in. „Ég lét uppi við ­for­mann­inn það ­sjón­ar­mið að ég teldi ekki rétt að fjár­mál flokks­ins væru í hönd­um ­kjör­inna full­trú­a. Þetta gerðum við strax báð­ir snemma í nóv­em­ber árið 2017 á þing­flokks­fund­i, ­skömmu eftir að við vorum kjörin á þing. Þegar upp komu ráða­gerð­ir nokkru síðar um að ráða ein­stak­ling úr fjöl­skyldu hennar [á skrif­stofu ­flokks­ins], þá sögðum við við for­mann­inn að þetta væri eitt­hvað sem ætti ekki við. Þetta var á fyrri hluta árs­ins 2018,“ segir Ólaf­ur.

Jafn­framt segir í frétt Morg­un­blaðs­ins að á síð­asta ári hafi þeir þeir Ólafur og ­Karl Gauti átt fund með rík­is­end­ur­skoð­anda vegna máls­ins en Ólafur segir að þeir hafi talið það ­skyldu sína að upp­lýsa rík­is­end­ur­skoð­anda um þessa þætti í starf­sem­i ­flokks­ins. „­Eft­ir­lit með fjár­reiðum stjórn­mála­flokka er á hendi Rík­is­end­ur­skoð­un­ar. Skömmu eftir að nýr maður tók þar við emb­ætti árið 2018 ­greindum við honum frá þessum stað­reyndum og lýstum áhyggjum okk­ar. Við áttum ágætt sam­tal við hann um ­eft­ir­lit með fjár­reið­u­m ­stjórn­mála­flokka,“ segir Ólaf­ur. 

Stjórnin segir að Karl Gauti og Ólafur ættu axla ábyrgð og að segja strax af sér þing­mennsku 

Að lokum segir í til­kynn­ing­unni frá stjórn­inni að hún ítreki að þing­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son eigi að axla ábyrgð á eigin gjörðum og segja strax af sér þing­mennsku. „­Stjórn Flokks fólks­ins ít­rek­ar fyrri yf­ir­lýs­ingu sína um að þeir Alþing­is­­menn sem koma fram á upp­­tök­un­um frá fundi stjórn­­ar mið­flokks­ins, og Ólafs Ísleifs­­son­ar þáver­andi þing­­flokks­­for­­manns og Karls Gauta Hjalta­­son­ar þáver­andi vara­­for­­manns þing­­flokks og þáver­andi stjórn­­­ar­­for­­manns Flokks fólks­ins, á barn­um Klaustri 20. nóv­­em­ber sl. ættu að axla ábyrgð á eig­in gjörðum og segja strax af sér þing­­mennsku,“ seg­ir í yf­ir­lýs­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent