Níu umsækjendur eru um embætti ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út í gær. Einn þeirra er Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ. Þetta kemur fram í frétt heilbrigðisráðuneytisins í dag.
Heilbrigðisráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar á umsækjendum.
Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:
- Ásta Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri
- Guðrún Gísladóttir, skrifstofustjóri
- Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
- Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi
- Ingunn Björnsdóttir, dósent
- Kristlaug Helga Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri
- Lárus Bjarnason, sýslumaður
- Sigurður Helgi Helgason, skrifstofustjóri
„Niðurstaða nefndarinnar skal vera ráðgefandi fyrir heilbrigðisráðherra við skipun í embættið. Í nefndinni eiga sæti Guðríður Þorsteinsdóttir, hrl., formaður, Ásta Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Landspítala og Sigurður Skúli Bergsson, tollstjóri. Starfsmaður nefndarinnar er Sigríður Jakobínudóttir,“ segir í frétt ráðuneytisins.