Ríkisendurskoðun hyggst gera stjórnsýsluúttekt á Ríkisútvarpinu. Úttektin mun ná til fjármögnunar og reikningsskila og samkeppnisrekstur RÚV. Stjórnsýsluúttekt felur í sér mat á frammistöðu stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins. Við mat á frammistöðu er meðal annars litið til meðferðar og nýtingar á ríkisféi og hvort hagkvæmni sé gætt í rekstri. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Ríkisendurskoðandi átti frumkvæðið að úttektinni
Ríkisendurskoðun átti frumkvæði að úttektinni en ekki eru veittar upplýsingar um einstaka athuganir og úttektir fyrr en endurskoðun eða stjórnsýsluúttekt er lokið. Skúli Eggert Þórðarson, ríkisendurskoðandi segir, í samtali við Fréttablaðið, ýmsar ástæður séu fyrir því kanni fjárhagsstöðu, hagkvæmni og skilvirkni embætta umfram það sem hefðbundin fjárhagsendurskoðun leiði í ljós.
Samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda getur Ríkisendurskoðun gert stjórnsýsluúttektir hjá öllum þeim aðilum sem fjármagna starfsemi sína með ríkisfé, ríkið á að hálfu eða meira eða njóta framlaga úr ríkissjóði vegna þjónustu sem þeir veita.
Fyrsta stjórnsýsluúttektin í 24 ár
Ekki hefur verið gerð stjórnsýsluúttekt á Ríkisútvarpinu í 24 ár, samkvæmt umfjöllun Fréttablaðsins. Síðasta úttekt Ríkisendurskoðunar var árið 1995 að ósk fjárlaganefndar Alþingis en þar áður var slík úttekt gerð árið 1988.
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, segir, í samtali við Fréttablaðið, að eðlilegt sé að Ríkisendurskoðun ráðist í úttekt núna en engin slík úttekt hefur farið fram síðan RÚV var gerð að opinberu hlutafélagi árið 2007. „Þessi tímapunktur er að mörgu leyti ágætur, rúm tíu ár eru liðin frá ohf-væðingu og RÚV hefur verið rekið hallalaust frá árinu 2014,“ segir Magnús.
Hann segir jafnframt að RÚV muni að sjálfsögðu aðstoða Ríkisendurskoðun við verkið. „Ríkisendurskoðun ber ábyrgð á endurskoðun ársreikninga RÚV en það er auðvitað hið besta mál að fá dýpri greiningu á tilteknum fjárhagslegum atriðum frá ohf-væðingu og við munum að sjálfsögðu aðstoða við verkið eins og óskað er eftir,“ segir Magnús.