Hefur verið rætt óformlega að skipa rannsóknarnefnd vegna sendiherramálsins

Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar segist telja að það verði að skoða hvort að skipa þurfi rannsóknarnefnd um sendiherramálið svokallaða, sem snýst um meint pólitísk hrossakaup um sendiherrastöður. Þetta kemur fram í sjónvarpsþættinum 21.

Helga Vala Helgadóttir stýrði fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Helga Vala Helgadóttir stýrði fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun.
Auglýsing

Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar þings­ins, segir að hún telji að skoða þurfi hvort að skipa þurfi rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um sendi­herra­málið svo­kall­aða. „Það hefur verið rætt við mig óform­lega bæði innan og utan þings frá lög­spek­ing­um.“

Auglýsing
Þingið hafi vald til þess að skipa slíkar rann­sókn­ar­nefndir og ef slík yrði skipuð myndi koma í ljós hvort þeir þing­menn sem neit­uðu að mæta fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd geti sagst ekki ætla að mæta fyrir rann­sókn­ar­nefnd.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Helgu Völu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Fyrr í dag fór fram fundur stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd um sendi­herra­málið svo­kall­aða. Það er angi af Klaust­ur­mál­inu, sem snýst um orð­ræðu sem við­höfð var í drykkju­sam­læti sex þing­­manna Mið­­flokks­ins og Flokks fólks­ins á Klaust­­ur­bar 20. nóv­­em­ber 2018. Eitt þeirra við­fangs­efna sem þar voru rædd voru póli­­tísk hrossa­­­kaup um send­i­herra­­stöð­­ur. Á upp­­­töku Báru Hall­­dór­s­dóttur af sam­tali þing­­mann­anna heyr­ist Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Mið­flokks­ins, ræða hrossa­­­­­kaup um skipan Árna Þórs Sig­­­urðs­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi þing­­­manns Vinstri grænna,  og Geirs H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­­­manns Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins, sem send­i­herra. Gunnar Bragi sagð­ist enn­fremur hafa sagt við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í kjöl­farið að honum þætti „sann­­­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“

Á upp­­tök­unum heyr­ist Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, stað­­festa þessa frá­­­sögn Gunn­­ars Braga. Eftir að upp­­­tök­­­urnar voru gerðar opin­berar hafi þeir þver­­­tekið fyrir að sagan um lof­orðið hafi verið sönn. Gunnar Bragi sagð­ist hafa verið að ljúga upp á Bjarna Bene­dikts­­son.

Hvorki Gunnar Bragi né Sig­mundur Davíð mættu á fund nefnd­ar­innar í morgun þrátt fyrir að hafa verið boð­aðir á hann. Þess í stað sendu þeir yfir­lýs­ingar þar sem þeir gagn­rýndu málið allt og sér­stak­lega Helgu Völu sem for­mann stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar.

Auglýsing
Helga Vala segir að það að skipa sendi­herra sé ekki lög­brot, óháð því hvort hann komi úr póli­tík eða við­skipta­líf­inu. „Það bara má og þekk­ist bæði hér­lendis og erlend­is. Það að gjalda slíkan greiða eða að fá emb­ætt­is­mann eða ráð­herra, í þessu til­viki Gunnar Braga, til þess að aðhaf­ast eitt­hvað gegn því að hann fái eitt­hvað síð­ar, það er lög­brot­ið.“

Hún segir að það liggi fyrir að Gunnar Bragi lýsi stöð­unni nákvæm­lega þannig á upp­tök­unni frá Klaust­ur­barn­um. „Fyrst sögð­ust þeir ekki hafa sagt þetta. Í yfir­lýs­ingu Sig­mundar Dav­íðs kom fram að hann teldi að átt hefði verið við upp­tök­una, eða að það hefði ekki verið búið að rann­saka hvort að átt hefði verið við upp­tök­una þannig að vænt­an­lega hafi orð verið slitin ein­hvern veg­inn úr sam­hengi eða púsluð ein­hvern veg­inn saman til þess að fá þessa útkomu. Það var að minnsta kosti ekk­ert í orðum þeirra sem mættu í morgun sem benti til þess að þetta lög­brot hefði átt sér stað. Hvert fram­haldið verður veit ég ekki. Að minnsta kosti þeir sem þarna voru hafa verið mjög missaga um þetta allt sam­an.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent