Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, koma báðir fyrir stjórnsýslu- og eftirlitsnefnd á fundi hennar sem hefst klukkan 10:30 í dag til að ræða um sendiherramálið svokallaða.
Fundurinn verið opinn og hægt verður að fylgjast með honum á forsíðu vefs Alþingis.
Bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Miðflokksins, og Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og varaformaður Miðflokksins, hafa einnig verið boðaðir á fundinn en ekki liggur fyrir hvort að þeir muni mæta.
Vegna umræðu í fjölmiðlum er rétt að taka eftirfarandi fram. Skýrslutaka yfir manneskju sem gerðist sek um eða tók á sig...
Posted by Miðflokkurinn on Wednesday, December 12, 2018
Þá var Guðlaugur Þór staddur erlendis þegar fundurinn átti að eiga sér stað og átti því ekki heimangengt.
Segist hafa verið að segja ósatt
Sendiherramálið er angi af Klausturmálinu. Eitt viðfangsefna drykkjusamlætis sex þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins á Klausturbar 20. nóvember 2018 voru pólitísk hrossakaup um sendiherrastöður. Á upptöku Báru Halldórsdóttur af samtali þingmannanna heyrist Gunnar Bragi ræða hrossakaup um skipan Árna Þórs Sigurðssonar, fyrrverandi þingmanns Vinstri grænna, og Geirs H. Haarde, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, sem sendiherra.
Á meðal þess sem Gunnar Bragi segir er: „Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendiherra í Washington […] þá ræddi ég við Sigurð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auðvitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn. Það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að skipa Árna Þór (Sigurðsson) sem sendiherra. Hann er náttúrulega bara […], þó hann sé frændi minn. VG hefðu getað orðið brjálaðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari.“
Síðar bætti Gunnar Bragi við: „Athyglin fór öll á Árna Þór. Annars hefði Vinstri Græna liðið orðið brjálað[...]Árni var náttúrulega ekkert annað en senditík Steingríms. Plottið mitt var að Geir yrði í skjólinu hjá Árna og það virkaði ekki bara 100 prósent heldur 170 prósent því að Árni fékk allan skítinn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyrir. Það var enginn sem gagnrýndi mig.“ Ég lét Árna taka allan slaginn.[...]Ég átti fund með Bjarna í fjármálaráðuneytinu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjörlega sjálfsagt. Auðvitað geri ég Geir að sendiherra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sanngjarnt að þið horfið til svipaðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Það var ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. Ég var ekki kominn út þegar Þórólfur (Gíslason) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendiherra?“ Ég var ekki kominn út úr ráðuneytinu.“
Á upptökunum heyrist Sigmundur Davíð staðfesta þessa frásögn Gunnars Braga. Eftir að upptökurnar voru gerðar opinberar hafi þeir þvertekið fyrir að sagan um loforðið hafi verið sönn. Gunnar Bragi sagðist hafa verið að ljúga upp á Bjarna Benediktsson.
Bjarni Benediktsson hefur jafnframt neitað því að hafa veitt slíkt loforð og Guðlaugur Þór segist ekki vita til þess að til stæði að gera Gunnar Braga að sendiherra þótt þeir hafi báðir staðfest að fundir hafi átt sér stað.
Fyrir fáeinum vikum áttum við Bjarni Benediktsson óformlegan fund með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni...
Posted by Guðlaugur Þór Þórðarson on Wednesday, December 5, 2018