Aldís segir Jón Baldvin hafa misnotað stöðu sína sem sendiherra

Dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar segir hann hafa nýtt bréfsefni sendiráðs Íslands í Washington þegar hann óskaði eftir því að hún yrði nauðungarvistuð á geðdeild.

Jón Baldvin Hallibalsson
Jón Baldvin Hallibalsson
Auglýsing

Aldís Schram, dóttir Jóns Bald­vins Hanni­bals­sonar fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, segir föður sinn hafa nýtt bréfs­efni sendi­ráðs Íslands í Was­hington þegar hann óskaði eftir því að hún yrði nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild. Með því hafi hann mis­notað stöðu sína sem sendi­herra til þess að reka per­sónu­leg erindi. Frá þessu greinir Aldís í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morg­un.

Jón Bald­vin var utan­rík­is­ráð­herra árin 1988 til 1995 og sendi­herra í Banda­ríkj­unum 1998 til 2002 og í Finn­landi 2002 til 2005. Fjórar konur greindu nýverið frá meintri kyn­ferð­is­legri áreitni Jóns Bald­vins í Stund­inni. Elstu sög­urnar eru frá sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar en sú nýjasta frá því síð­asta sum­ar. Þá hefur fjöldi kvenna gengið í #metoo hóp á Face­book þar sem frek­ari sögur af kyn­ferð­is­brotum hans og ósæmi­legri hátt­semi hafa komið fram.

Aldís seg­ist hafa gengið á föður sinn árið 1992 vegna kyn­ferð­is­brota eftir að gömul skóla­systir hennar hafði sagt Aldísi frá því að hún hefði vaknað við að Jón Bald­vin væri að áreita hana kyn­ferð­is­lega. Aldís telur að sá fundur hafi orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild.

Auglýsing

Gat hringt í lög­regl­una til að hand­taka hana

Aldís segir að eftir þetta hafi hann getað hringt í lög­reglu hvenær sem er til að hand­taka hana. „Um­svifa­laust er ég í járnum farið með mig upp á geð­deild, ég fæ ekki við­tal og það er skraut­legt að lesa þessar yfir­lýs­ingar geð­lækna. Það er um ein­hverjar ímynd­anir mínar og rang­hug­myndir sem ég er með þegar ég er reið út í föður minn,“ segir hún. 

Hún segir enn fremur að Jón Bald­vin hafi getað sem ráð­herra og síðar sendi­herra sent bréf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til þess að hún yrði nauð­ung­ar­vi­st­uð.

Hún talar jafn­framt um atvik sem átti sér stað árið 1998 en þá hafi lög­regla brotið sér leið inn á heim­ili hennar ásamt lækni og ætt­ingja henn­ar, að því er virð­ist að nauð­synja­lausu, enda yfir­gáfu læknir og lög­regla hús­næðið sam­kvæmt sömu lög­reglu­skýrslu. „En viti menn, sem ég vissi ekki fyrr en ég las lög­reglu­gögn, að aðferð þessi kall­ast aðstoð við erlent sendi­ráð, sam­kvæmt lög­reglu­gögn­um,“ segir Aldís.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent