Hefur áhyggjur af fordæminu þegar þingmenn neita að koma fyrir nefndir

Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vill að forsætisnefnd skoði hvort að breyta þurfi reglum þannig að t.d. þingmönnum verði gert skylt að mæta fyrir þingnefndir.

Helga vala í 21
Auglýsing

Helga Vala Helga­dótt­ir, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþing­is, seg­ist hafa miklar áhyggjur af því for­dæmi sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, settu þegar þeir neit­uðu að koma fyrir nefnd­ina vegna sendi­herra­máls­ins svo­kall­aða. „Ég vona að þeir aðilar sem við þurfum að kalla fyrir nefnd­ina í hverri viku, mörgum sinnum á hverju þingi, ég vona að þeir horfi ekki á þessa tvo aðila, Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Braga Sveins­son, og líti til þeirra sem for­dæm­is­gjafa.“

Sömu­leiðis seg­ist hún vona að almenn­ingur í land­inu, sem þing­nefndir þurfi oft að leita til, vegna álita eða svara við ein­hverjum störfum eða starfs­hátt­um, sem og emb­ætt­is­menn, ráð­herrar og for­stjórar rík­is­fyr­ir­tækja, finni til ábyrgðar sinnar gagn­vart sam­fé­lag­inu og mæti fyrir fasta­nefndir Alþingis þegar þess sé ósk­að.

Auglýsing
Þetta er meðal þess sem fram kemur í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Helgu Völu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Í upp­hafi opins fundar nefnd­ar­inn­ar, sem haldin var á mið­viku­dags­morg­un, las Helga Vala upp yfir­lýs­ingar frá Sig­mundi Davíð og Gunn­ari Braga þar sem þeir gagn­rýndu málið allt og sér­stak­lega Helgu Völu sem for­mann stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar. Þetta var í annað sinn sem þeir neit­uðu að koma fyrir nefnd­ina til að ræða grun­semdir um póli­tísk hrossa­kaup með sendi­herra­stöð­ur, sem þeir ræddu í frægu drykkju­sam­læti á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018.

Aðspurð hvort að það komi til greina að boða Sig­mund Davíð og Gunnar Braga aftur til fundar við nefnd­ina segir Helga Vala að þeir séu nú búnir að lýsa yfir sinni skoð­un. „Ég las upp þeirra yfir­lýs­ingar eins og óskað var eft­ir. Þær voru nokkuð afger­andi. Þeim finnst sem þing­menn að þeim beri engin skylda til að mæta fyrir fasta­nefndir þings­ins. Ég held að þetta sé mál sem for­sætis­nefnd Alþingis þurfi að skoða. Það er auð­vitað þannig í lögum um þing­sköp Alþingis að það er hvergi minnst á skyldu for­stjóra rík­is­stofn­ana, ráð­herra eða þing­manna til að mæta. Það er ekki eins og er í lögum um með­ferð saka­mála þar sem þú getur látið hand­taka ein­stak­ling og færa hann í skýrslu­töku. Í gjald­þrota­lög­unum er það hægt lík­a.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent