Helmingur landsmanna hefur breytt daglegum innkaupum til að minnka umhverfisáhrif

Rúmlega helmingur landsmanna hefur breytt daglegum innkaupum sínum á síðustu tólf mánuðum til þess að lágmarka áhrif á umhverfi og loftlagsbreytingar. Auk þess hafa tæplega tveir af hverjum þremur breytt hegðun sinni til minnka umhverfisáhrif.

bónus afgreiðslufólk
Auglýsing

Rúm­lega helm­ingur lands­manna hefur breytt ­neyslu­venj­u­m sínum í dag­legum inn­kaupum gagn­gert til þess að minnka umhverf­is­á­hrif á síð­ustu tólf mán­uð­um. Auk þess hafa tæp­lega tveir af hverjum þremur breytt hegðun sinni fyrir umhverfið en færri hafa breytt ferða­venjum sínum á ein­hvern hátt með það fyrir augum að lág­marka umhverf­is­á­hrif. Þetta kemur fram í nýrri Umhverfiskönnun Gallups, Rúv greindi fyrst frá nið­ur­stöðum könn­un­ar­inn­ar.

Meiri­hlut­i lands­manna hefur breytt hegðun sinni  til að minnka áhrif á umhverfið

Í könn­unn­i var spurt hvort að við­kom­andi hafði breytt neyslu­venjum sínum í dag­legum inn­kaupum á ein­hvern hátt gagn­gert til að minnka umhverf­is­á­hrif en 51,5 pró­sent svör­uðu að þeir hefðu breytt neyslu­venjum sínum í inn­kaupum ann­að­hvort mikið eða nokk­uð. Rúm­lega 30 pró­sent svar­enda sögð­ust hafa breytt neyslu­venjum sínum lítið en 17,2 pró­sent sögð­ust ekk­ert hafa breytt inn­kaupum sínum á síð­ustu tólf mán­uðum til að lág­marka áhrif á umhverfi og ­lofts­lags­breyt­ing­ar. 

Spurt var hvort viðkomandi hafi á síðastliðinum 12 mánuðum breytt hegðun sinni til þess að lágmarka áhrif á umhverfi og loftslagsbreytingar, breytt neysluvenjum sínum í daglegum innkaupum á einhvern hátt gagngert til þess að minnka umhverfisáhrif og breytt ferðavenjum á einhvern hátt til þess að minnka umhverfisáhrif af ferðamáta sínum.

Jafn­framt var spurt í könn­unni hvort að við­kom­andi hefði breytt hegðun sinni til þess að lág­marka áhrif á umhverfi og ­lofts­lags­breyt­ing­ar. Þá svör­uðu tæp­lega tveir af hverjum þremur eða um 63 pró­sent svar­enda að þeir hefðu breytt hegðun sinni mikið eða nokk­uð. Alls svör­uðu 23,9 pró­sent að þeir hefðu breytt hegðun sinni lítið og rúm 13 pró­sent svar­enda sögð­ust ekk­ert hafa breytt hegðun sinni.

Auglýsing

Færri breytt ferða­venjum sínum

Bílar

Fæstir hafa breytt ferða­venjum sínum á ein­hvern hátt til þess að minn­ka um­hverf­is­á­hrif af ferða­máta sínum en 40,8 pró­sent sögð­ust ekk­ert hafa breytt ferða­venjum sínum á síð­ustu 12 mán­uð­um. Um 20 pró­sent sögð­ust hafa breytt ferða­venjum sínum nokkuð og 5,2 pró­sent sögð­ust hafa breytt þeim mik­ið. 

Könn­unin var gerð í til­efni af umhverf­is­ráð­stefn­u Gallup ­sem haldin verður í annað sinn í Hörpu næsta ­föstu­dag. Á ráð­stefn­unni verða heildar nið­ur­stöður Umhverfiskönn­un­ar Gallup kynnt­ar, en þar verður farið yfir við­horf og hegðun Íslend­inga í tengslum við umhverf­is­mál og lofts­lags­breyt­ing­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent