Krónan hefur nú sett upp sérstakt afpökkunarborð fyrir viðskiptavini í tveimur verslunum sínum, í Lindum og úti á Granda. Viðskiptavinum gefst kostur á að skilja óþarfa umbúðir eftir í verslunum til að minnka heimilisruslið Afpökkunarborðin eru staðsett fyrir aftan afgreiðslukassa borðunum og boðið er upp á að flokka og skilja eftir plast- og pappaumbúðir. Krónan sér síðan til þess að umbúðirnar séu flokkaðar og endurunnar á réttan hátt.
Langtímamarkmiðið að lágmarka umbúðir í samstarfi við birgja
Í tilkynningu frá versluninni segir að ástæðan fyrir nýjungunni sé að verslunin vilji finna leiðir til að minnka heimilisrusl. Langtíma markmið Krónunnar sé að lágmarka umbúðir í samstarfi við birgja og að sú vinna sé nú þegar hafin hjá verslunninni. Afpökkunarborðin eru því visst milliskref hjá Krónunni við að minnka plast og pappa.
,,Við hjá Krónunni erum meðvituð um þá staðreynd að ein helsta áskorun í umhverfismálum samtímans er að minnka sóun, bæði þá sóun sem verður til vegna matar sem fer til spillis en einnig vegna pappa- og plastumbúða utan um matvæli og nauðsynjavörur. Krónan er stórt fyrirtæki sem getur nýtt kraft sinn til góðs og er afpökkunarborðið eitt af mörgum verkefnum sem eru í gangi hjá okkur.“ segir í tilkynningunni.
Verslunin segir að ef vel sé tekið í framtakið þá muni afpökkunarborðum verið komið fyrir í flestum verslunum. Framkvæmdastjóri Krónunnar segir að markmiðið sé hins vegar að ekki verði þörf á afpökkunarborðum í framtíðinni heldur sé markmiðið að finna umhverfisvænni umbúðir.
„Okkar langtímamarkið er að finna umbúðir sem tryggja bæði að ferskleiki matvörunnar haldist sem lengst svo matarsóun aukist ekki og að umbúðirnar verði umhverfisvænni í góðri samvinnu við framleiðendur, söluaðila og okkar viðskiptavini. Þannig má segja að markmiðið sé að ekki verði þörf á afpökkunarborðum í framtíðinni“ segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.