Tæplega helmingur kvenkyns lækna orðið fyrir kynferðislegu áreiti í starfi

Mikill meirihluti lækna telja sig vera undir of miklu álagi í starfi í nýrri könnun Læknafélags Íslands. Tæplega fimmtíu prósent kvenkyns lækna hafa orðið fyrir kynferðislegu áreiti einhvern tímann á starfsævinni og um 7 prósent á síðustu þremur mánuðum.

landspitalinn_16010792546_o.jpg
Auglýsing

Síð­asta árið hafa um það bil helm­ingur lækna hug­leitt það oft eða stundum að láta af störfum en mik­ill meiri­hluti lækna telja sig vera undir of miklu álagi. Þetta kemur fram könnun á líðan og starfs­að­stæðum læna,  sem unnið var í októ­ber á síð­asta ári. Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöð­u­m könn­un­ar­inn­ar að tæp­lega fimm­tíu pró­sent kven­kyns lækna hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni

Mik­ill meiri­hluti lækna telji sig vera undir of miklu álagi

Jafn­framt kemur fram í könn­unni að mik­ill meiri­hluti lækna telja sig vera undir of miklu álagi með­ til­heyr­andi streitu­ein­kenn­um, trufl­andi van­líðan og sjúk­dóms­ein­kenn­um. Rúm­lega helm­ingur hefur fund­ist að þeir geti ekki upp­fyllt kröfur eða ráðið við streitu í starfi og auk þess eru svefn­trufl­anir á meðal lækna algeng­ar. 

Í til­kynn­ingu frá Lækna­fé­lag­inu segir að því miður virð­ist ein­elti og kyn­bundið ofbeldi innan stétt­ar­innar vera sam­bæri­legt við margar aðrar starfs­stétt­ir. En tæp­lega helm­ingur kven­kyns lækna eða 47 pró­sent, hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu áreit­i ein­hvern tím­ann  á starfsæv­inni og um 7 pró­sent höfðu orðið kyn­ferð­is­legu áreiti á vinnu­stað á síð­ustu þremur mán­uð­um, sam­kvæmt könn­un­inn­i. ­Sam­bæri­legar tölur hjá körlum voru 1 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum og 13 pró­sent yfir starfsæv­ina. 

Sjö pró­sent svar­enda í könn­unni taldi sig hafa orðið fyrir ein­elti á síð­ustu þremur mán­uðum og 26 pró­sent ein­hvern tí­mann á starfsævinni.

Auglýsing

Yfir 60 pró­sent lækna vilja færa Land­spít­al­ann 

Yfir 60 pró­sent lækna töldu stað­setn­ingu Land­spítala við Hring­braut óheppi­lega og þörf á nýju stað­ar­vals­mati vegna bygg­ingar nýs spítala. Ein­ungis um fjórð­ungur allra starfs­stöðva tald­ist vera hæfi­lega mann­aður en í um 72 pró­sent til­vika þóttu þær vera und­ir­mann­að­ar. Um helm­ingur svar­enda taldi þó að ís­lensk heil­brigð­is­þjónusta væri sam­bæri­leg við það sem þeir þekktu í nágranna­lönd­um.

Í könn­unni skipt­ist afstaða til launa­kjara skipt­ist í tvo álíka stóra hópa. 45 pró­sent svar­enda voru mjög eða frekar ósam­mála því að laun þeirra væru sann­gjörn en aftur á móti svör­uðu 42 pró­sent svar­enda að þau væru því mjög eða frekar sam­mála því að laun þeirra væru sann­gjörn. Að með­al­tali var vinnu­vika um fjórð­ungs þátt­tak­enda á bil­inu 61 til 80 klukku­stundir og 4 pró­sent voru með yfir 80 unnar klukku­stundir á viku. 

Árlegir Lækna­dag­ar eru haldnir í Hörpu í þess­ari viku og í dag verða nið­ur­stöður könn­un­ar­innar kynntar og rædd­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent