Félagið Hvalur hf. hefur fest kaup á hlut í Marel fyrir um milljarð króna en eignarhlutur Hvals í Marel nemur þá tæplega 0,4 prósentum. Stærsti eigandi Hvals er Fiskveiðihlutafélagið Venus en það er að stórum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar, forstjóri Hvals. Gengið var frá kaupunum þriðjudaginn 15. janúar síðastliðinn, samtals 2,55 milljónir hluta á genginu 390. Frá þessu er greint í Markaðinum í dag.
Hvalur hagnaðist um tæplega 1,5 milljarða á síðasta ári
Hvalur er eigandi Vogunar en það félag seldi, ásamt Fiskveiðahlutafélaginu Venus, samanlagt 34 prósenta hlut sinn í HB Granda í apríl í fyrra fyrir samtals 21,7 milljarða króna. Vogun er meðal annars stærsti einstaki eigandi Origo með 10,8 prósenta hlut og eins Hampiðjunnar með tæplega 44 prósenta hlut. Þá keypti félagið um 0,4 prósenta hlut í hlutafjárútboði Arion banka á síðasta ári.
Stærsti hluthafi Vogunar er Venus með rúmlega 30 prósenta hlut en það félag er í eigu Kristjáns og Birnu Loftsdóttur. Kristján Loftsson er stjórnarformaður HB Granda og forstjóri Hvals, en hann var tekjuhæsti einstaklingurinn í sjávarútvegi árið 2018, samkvæmt Tekjublaði DV í júní í fyrra. Mánaðarlaun Kristjáns námu 4,7 milljónum í júní í fyrra.
Hvalur hf. rekur hvalstöðina í Hvalfirði, gerir út hvalveiðiskip og vinnur afurðirnar. Hvalur átti eignir upp á 19,6 milljarða í lok september 2017 en skuldirnar námu á sama tíma 2,3 milljörðum, samkvæmt umfjöllun Markaðarins. Eigið fé félagsins var því um 17,3 milljarðar. Hvalur hagnaðist um tæplega 1,5 milljarða á síðasta rekstrarári og dróst hagnaðurinn saman um ríflega 515 milljónir frá fyrra ári.
Hlutabréfaverð Marels hækkaði um 15 prósent í fyrra
Stærsti hluthafi Marels er Eyrir Invest með tæplega 28 prósenta hlut. Þá eiga íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt um 38 prósenta hlut. Í umfjöllun Markaðarins segir að sjóður í stýringu American Funds, dótturfélags bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Capital Group, hafi verið að bæta við sig í Marel að undanförnu og er orðinn níundi stærsti hluthafinn með tveggja prósenta hlut.
Hlutabréfaverð Marels hækkaði um tæp 15 prósent í fyrra og miðað við núverandi gengi bréfa félagsins, sem er 393 krónur á hlut, nemur markaðsvirði þess um 268 milljörðum króna. Samkvæmt Markaðinum vinna stjórnendur Marels vinna nú að því að skrá félagið tvíhliða í erlenda kauphöll.