Íslandsbanki hefur ákveðið að endurnýja ekki samning við matsfyrirtækið Fitch Ratings um lánshæfismat.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands segir að ákvörðunin sé tekin út frá hagkvæmissjónarmiðum. „Mun bankinn halda áfram vinna með S&P Global Ratings með opinni og gagnsærri upplýsingagjöf til að styðja við lánshæfismatsvinnu fyrirtækisins tengdri Íslandsbanka.“
Fitch staðfesti lánshæfismat Íslandsbanka sem BBB með stöðugum horfum í lok nóvember síðastliðins.
Auglýsing
Bankinn er í dag með lánshæfismat upp á BBB+/A-2 með stöðugum horfum hjá S&P Global Ratings sem var staðfest í júlí 2018 af fyrirtækinu.