Þorsteinn Már: Álit Umboðsmanns enn einn sigur okkar

Forstjóri Samherja gagnrýnir Seðlabanka Íslands, en segist gera sér hóflegar væntingar um að málinu ljúki þegar bankaráð skilar skýrslu til forsætisráðherra.

Þorsteinn Már Baldvinsson
Auglýsing

„Ágætu starfs­menn, álit um­boðs­manns Alþingis er enn einn sigur okk­ar og stað­festir það sem við höfum alltaf sagt varð­andi fram­göngu stjórn­enda seðla­bank­ans gagn­vart starfs­fólki Sam­herja og fyr­ir­tæk­inu sjálfu,“ segir í færslu frá Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra og eins stærsta eig­anda Sam­herja, á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Þar vísar hann í álit Tryggva Gunn­ars­son­ar, Umboðs­manns Alþing­is, þar sem hann fjallar um svör bank­ans vegna stjórn­valds­sektar sem lögð var á Þor­stein Má. Það er mat Umboðs­manns að svar Seðla­bank­ans hafi ekki verið lögum sam­kvæmt, eins og áður hefur verið greint frá.

„Hann er ekki guð, hann er ekki óskeik­ull, hann er ekki dóm­stóll,“ er fyr­ir­sögnin á umfjöll­un­inni á vef fyr­ir­tæk­is­ins, og er þar vitnað til orða sem Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, lét falla í við­tali, árið 2015.

Auglýsing

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.

Þessi for­dæma­lausu orð lét seðla­banka­stjóri hafa eftir sér um umboðs­mann Alþingis í útvarps­við­tali þann 22. nóv­em­ber 2015 í til­efni bréfs umboðs­manns Alþingis frá 2. októ­ber sama ár. ­At­huga­semdin ber þess keim að seðla­banka­stjóri hafi ekki ætlað sér að bregð­ast við athuga­semdum umboðs­manns um stjórn­sýslu bank­ans og á ótrú­legan hátt komst hann upp með það. ­Seðla­banka­stjóri hefur gert sér grein fyrir því að gjald­eyr­is­regl­urnar hafi ekki geta verið grund­völlur aðgerða allt frá árinu 2011. Á blaða­manna­fundi 21. sept­em­ber 2011 lét hann eft­ir­far­andi orð falla: „Það sem að við höfum verið að bíða eftir og í fyrsta lagi nátt­úru­lega að yrði sam­þykkt þetta frum­varp á þing­inu, nú liggur það fyr­ir. Vegna þess að þar fáum við miklu traust­ari laga­heim­ild­ir, sko nú er það þannig að það er alltaf umdeilt meðal lög­fræð­inga orðið þessa dag­ana hvort þú mátt gera eitt­hvað. Sumir segja þú mátt aldrei gera neitt nema það standi nákvæm­lega í lög­unum að þú megir gera það. Aðrir segja, ja, það er ekki bannað og þú hefur svona almennar heim­ild­ir. Út af þessu og þetta er eitt­hvað sem lög­fræð­inga­stéttin á Íslandi þarf að gera upp við sig.

Ofan­greind til­vitnum lýsir því kannski líka hvernig seðla­banka­stjóri lítur á vald sitt,“ segir í færsl­unn­i. 

Þá segir einnig, að það verði fróð­legt að fylgj­ast með því hvort mál­inu ljúki með skýrslu banka­ráðs til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. „Það verður fróð­legt að sjá grein­ar­gerð banka­ráðs til for­sæt­is­ráð­herra um fram­göngu stjórn­enda seðla­bank­ans gagn­vart Sam­herja og hvort hún geti orðið grund­völlur þess að þessu máli ljúki. Ég verð þó að við­ur­kenna að eftir allt sem á undan hefur gengið er ég hóf­lega bjart­sýnn á það og er undir það búinn að við þurfum að gera okkar skýrslu til for­sæt­is­ráð­herra, af nógu er að taka. Stjórn­endur seðla­bank­ans hafa ítrekað brotið á okkar rétt­indum og hefur fram­ferði þeirra verið óátalið til þessa. Ég get þó ekki annað en vonað að nú verði breyt­ing á þegar for­sæt­is­ráð­herra hefur skorist í leik­inn,“ segir í umfjöll­un­inni á vef Sam­herja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent