Þingmenn Miðflokksins hyggjast leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála varðandi bann við myndatökum og hljóðupptökum í dómhúsum. Málið er á dagskrá þingfundar Alþingis í dag.
Ef frumvarpið verður samþykkt þá verður óheimilt að hljóðrita eða taka myndir í þinghaldi eða í dómhúsum. Dómari gæti veitt undanþágu frá þessu banni ef sérstaklega stæði á, enda væri þess gætt að myndatökum og hljóðupptökum yrði ekki beint að aðilum dómsmáls án samþykkis þeirra. „Ef tekið hefur verið upp hljóð eða teknar myndir í þinghaldi án leyfis dómara er óheimilt að birta þær hljóðupptökur eða myndir. Einnig eru óheimilar myndatökur og hljóðupptökur af sakborningum, brotaþolum eða vitnum á leið í dómhús eða frá því án samþykkis þeirra,“ segir í frumvarpinu.
Fyrsti flutningsmaður er Þorsteinn Sæmundsson en með honum eru Anna Kolbrún Árnadóttir, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólason, Þorgrímur Sigmundsson og Sigurður Páll Jónsson. Öll eru þau þingmenn eða varaþingmenn Miðflokksins.
Ákvæði að noskri og danskri fyrirmynd
Í greinargerð með frumvarpinu segir að í því sé gert ráð fyrir að víkka gildissvið laga um meðferð sakamála um bann við myndatökum og hljóðritun af aðilum að sakamálum, sem eru á leið í dómhús eða frá því, án samþykkis þeirra. Sé slíkt ákvæði að norskri og danskri fyrirmynd. Ákvæðinu sé ekki ætlað að ná til myndatöku og hljóðritunar sem fram fer á vegum dómstólsins sjálfs, og séu þar hafðar í huga þær upptökur sem séu eðlilegar við rekstur dómstólsins, svo sem hljóðritun á framburði vitna og hefðbundin notkun öryggismyndavéla. Þá sé gert ráð fyrir því að dómari geti heimilað myndatöku og hljóðritun með sérstöku leyfi og sé þar átt við upptökur sem ekki snerta aðila dómsmáls, sem eru í dómhúsinu vegna málsins. Megi hugsa sér í þessu samhengi myndatöku vegna almennrar fréttar um dómstólinn eða viðtals við dómara.
Í greinargerðinni kemur fram jafnframt fram að í dönskum réttarfarslögum sé meginreglan sú að hljóðritun eða myndatökur séu bannaðar. Enn fremur séu myndatökur í dómhúsum bannaðar, nema með sérstöku leyfi. Sama gildi um myndatökur af grunuðum mönnum, sakborningum eða vitnum í sakamáli sem eru á leið til eða frá þinghaldi.
Ákvæðum í norskum dómstólalögum svipi nokkuð til dönsku reglnanna. Myndatökur og hljóðritanir í þinghaldi í sakamálum séu bannaðar og einnig sé bannað að hljóðrita eða taka myndir af sakborningi á leið til eða frá þinghaldi eða í dómhúsi því þar sem þinghald fer fram. Heimilt sé að víkja frá þessu ef veigamikil rök mæla með því.
Aðstæður trufla málsaðila
„Mjög hefur færst í vöxt að reynt sé að ná myndum af aðilum og vitnum í dómsmáli þegar þeir sinna erindum sínum í dómhúsum. Einkum á þetta við í opinberum málum. Undanfarin ár hefur jafnvel verið tíðkað að beina myndavélum inn í dómsali þegar dyr eru opnaðar meðan á þinghaldi stendur, svo sem þegar nýtt vitni gengur í salinn. Leiðir það til þess að hinn ákærði og vitni þurfa jafnan að hafa vara á sér að þessu leyti meðan á þinghaldinu stendur í stað þess að einbeita sér að málsvörn sinni eða vitnaleiðslu.
Þykja þessar aðstæður vera til þess fallnar að trufla málsaðila, enda hafa þær slæm áhrif á bæði sakborninga og vitni. Dæmi eru um að vitni hafi viljað koma sér undan því að bera vitni vegna þessa. Einnig er ljóst að tækninni hefur fleygt fram hvað varðar farsíma, spjaldtölvur og myndavélar þannig að unnt er t.d. að taka myndir af skjölum í dómsal eða skjölum í fórum sakborninga eða vitna í dómhúsi. Slíkar myndatökur geta haft óeðlileg áhrif á gang mála,“ segir í greinargerðinni.
Enn fremur kemur fram að meginreglan sé sú að þinghöld skuli háð í heyranda hljóði. Sú regla sé ekki skert með því að banna myndatökur af aðilum máls inni í dómhúsi eða nálægt því eins og tíðkast í Danmörku og Noregi. Sú takmörkun sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu gangi ekki of nærri meginreglunni um opin þinghöld að mati flutningsmanna.