Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í febrúarhefti Peningamála er gert ráð fyrir að töluvert hægi á hagvexti í ár og að hann verði 1,8 prósent. Þetta er um 1 prósentu minni vöxtur en bankinn gerði ráð fyrir í nóvember og gangi það eftir yrði það minnsti hagvöxtur sem mælst hefur frá árinu 2012. Hægari vöxtur stafar einkum af samdrætti í ferðaþjónustu, samkvæmt Seðlabankanum. Horfur séu því á að spenna í þjóðarbúskapnum minnki hraðar en áður hafi verið talið.
Verðbólga jókst eftir því sem leið á síðasta ár og mældist 3,7 prósent í desember síðastliðnum. Áhrif hækkunar innflutningsverðs vegna gengislækkunar krónunnar á haustmánuðum síðasta árs vega þar þyngst, segir í tilkynningunni. „Þótt verðbólga hafi minnkað í 3,4 prósent í janúar og gengi krónunnar hækkað frá desemberfundi peningastefnunefndar eru horfur á að verðbólga aukist fram eftir ári og verði yfir markmiði fram á seinni hluta næsta árs.“
Verðbólguvæntingar markaðsaðila og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hafa lækkað frá desemberfundinum. Taumhald peningastefnunnar, eins og það mælist í raunvöxtum Seðlabankans, hefur því aukist á ný.
Samkvæmt bankanum mun peningastefnan á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Fram kemur í tilkynningu Seðlabankans að peningastefnunefnd ítreki að hún hafi bæði vilja og þau tæki sem þurfi til að halda verðbólgu og verðbólguvæntingum við markmið til lengri tíma litið. „Það gæti kallað á harðara taumhald peningastefnunnar á komandi mánuðum. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, munu skipta miklu um hvort svo verður og hafa áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi.“