Fimm ungliðahreyfingar skora á íslensk stjórnvöld að þrýsta á Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna að beita sér fyrir því að mannréttindabrot gegn börnum á landamærum þarlendis verði stöðvuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hreyfingunum sem send var til fjölmiðla í morgun.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur til Íslands þann 15. febrúar næstkomandi og mun hann hitta Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Pompeo mun dvelja í Evrópu dagana 11. til 15. febrúar. Fyrirhugað er að Pompeo muni ræða málefni norðurslóða við fulltrúa ríkisstjórnarinnar, forystu Íslands í norðurskautsráðinu og vaxandi efnahagssamskipti ríkjanna.
Nauðsynlegt að ríkisstjórnin sé ekki aðgerðarlaus áhorfandi
Ungliðahreyfingarnar telja nauðsynlegt að ríkisstjórn Íslands fordæmi aðgerðir bandarískra stjórnvalda en sé ekki aðgerðarlaus áhorfandi í slíkum alvarlegum brotum.
„Ekkert barn á að þurfa að alast upp í varðhaldi og engu barni, né fjölskyldu þess, skal refsað fyrir að leita öryggis. Það er ekkert pólitískt við það að bjarga lífi barna og það er mikilvægt að hafa í huga að fólk sem er á flótta, til að halda lífi, hefur rétt á réttlátri yfirheyrslu, réttarhaldi og mannúðlegri málsmeðferð,“ segir í áskoruninni.
Enn fremur kemur fram að samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna beri ríkjum að gera það sem barni er fyrir bestu þegar kemur að ákvörðunum er snerta börn. Stefna Bandaríkjanna brjóti á ákvæðum sáttmálans og vinni gegn tilgangi hans. Bandaríkin séu ekki að aðskilja foreldra og börn með þeirra hagsmuni að leiðarljósi heldur sem fyrirbyggjandi refsingu gegn óskráðri komu foreldra þeirra inn í landið. Stefnan muni hafa skelfilegar afleiðingar fyrir börnin og foreldra þeirra.
Fimm ungliðahreyfingar skrifa undir áskorunina: Ung vinstri græn, Ungir jafnaðarmenn, Ungir píratar, ungir meðlimir Sósíalistaflokksins og Uppreisn.