Icelandair áformar að auka sætaframboð sitt yfir sumartímann um 14 prósent nú í ár frá því sem var í fyrra að því er fram kemur í ferðaáætlunum flugfélaganna sem fljúga um Keflavíkurflugvöll á komandi sumri. Áætlanir gera ráð fyrir að framboð sæta hjá WOW air dragist saman um 44 prósent. Hjá öðrum flugfélögum sem fljúga um Keflavíkurflugvöll verður samanlagt um 4 prósent samdráttur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia sem send var út í dag en þar er bent á að hafa beri í huga að þessi flugáætlun, sem og aðrar, geti tekið breytingum hjá flugfélögunum.
Mesta framboð á flugsætum verður til og frá Kaupmannahöfn, samkvæmt Isavia. Framboð á sætum til og frá Kaupmannahöfn eykst um níu prósent frá því sem var í fyrra. Heildarframboð á flugsætum minnkar þó og fer úr 7,9 milljón flugsætum á sumaráætlun í fyrra niður í 7,1 milljón flugsæta í ár. Það er samdráttur upp á 10 prósent.
„Mismunandi er þó hvort félögin eru að minnka sætaframboð eða auka það. Wizz air eykur sætaframboð sitt um 15 prósent, SAS um 22 prósent og Finnair um 10 prósent á meðan easyJet minnkar framboðið um 11 próesent, British Airways um 23 prósent og Norwegian um 14 próesnt,“ segir í tilkynningu Isavia.
Útlit fyrir að flugsætum til og frá Bandaríkjunum muni fækka
Samkvæmt áætlunum félaganna fyrir næsta sumar er útlit fyrir að flugsætum til og frá Bandaríkjunum fækki um 29 prósent og til og frá Bretlandi um 22 prósent. Sætaframboð til og frá Þýskalandi eykst hins vegar um 10 prósent, til og frá Noregi og Sviss um 16 prósent og Kanada um 18 prósent. Samkvæmt Isavia er helsta skýringin á minna framboði bandarískra flugsæta fækkun áfangastaða í Bandaríkjunum og færri flugsæti til og frá Bretlandi geta skýrst af minna sætaframboði hjá bæði easyJet og British Airways í sumar.
Sætaframboð eykst á leiðum til og frá Kaupmannahöfn, eða um 9 prósent milli ára. Þá eykst framboðið um 16 prósent til og frá Ósló. Það dregst saman um 18 prósent til og frá JFK-flugvelli í New York og um 9 prósent til og frá París.
Tölurnar gilda fyrir tímabilið apríl til október 2019 og gildir samanburðurinn fyrir sama tímabil í fyrra. Sumartímabilið samkvæmt skilgreiningu Alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA, nær frá lok mars ár hvert til loka októbermánaðar.
Skúli segir viðræður ganga vel
Í frétt Fréttablaðsins í dag var sagt frá því að Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, hefði skrifað í tölvupósti til starfsmanna sinna að viðræðurnar við Indigo Partners gangi vel og að ósannir orðrómar um WOW air verði áfram á kreiki.
„Veturinn hefur verið erfiður en ég get fullvissað ykkur um að viðræðurnar við Indigo Partners ganga vel og samkvæmt áætlun eins og þið sem takið beinan þátt í þeim vitið. Það er fullkomlega eðlilegt að flóknar viðræður og stórar fjárfestingar taki lengri tíma en búist var við,“ skrifaði Skúli í tölvupóstinum.
„Á meðan viðræðunum stendur veit ég að þið fáið daglega spurningar og það leikur enginn vafi á því að áfram verða ósannir orðrómar um WOW air á kreiki. En ég er sannfærður um að svo lengi sem við höldum áfram og einblínum á það, að bjóða lág verð, góða þjónustu og koma farþegum tímanlega á áfangastaði, muni okkur takast ætlunarverkið.“
Enn fremur kom fram í fréttinni að Skúli hefði greint frá því í tölvupóstinu að reksturinn gangi vel á nýju ári. Til að mynda hefðu tekjur í janúar verið umfram áætlun.