Orð Ragnars Þórs „ómakleg árás“ á leigufélag sem rutt hefur brautina

Almenna leigufélagið hafnar því alfarið að félagið hafi hagað sér með óábyrgum hætti á markaði.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

Almenna leigu­fé­lag­ið, í eigu GAMMA, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem mál­flutn­ingi Ragn­ars Þórs Ing­ólfs­son­ar, for­manns VR, er mót­mælt og hann sak­aður um „ómak­lega árás“ á fyr­ir­tæk­ið. 

Eins og greint var frá fyrr í dag sagði í opnu bréfi VR að Almenna leigu­fé­lagið hefði kraf­ist tug­þús­unda hækk­unar á leigu og að leigj­endum séu settir afar­kost­ir, með litlum sem engum fyr­ir­vara. „VR hafa borist gögn með sam­­skiptum Almenna leig­u­­fé­lags­ins við nokkra leigj­endur sína þar sem enn á ný er án fyr­ir­vara, eða nokk­­urra hald­­bærra raka, kraf­ist tug­­þús­unda hækk­­unar leigu og leigj­endum settir þeir afar­­kostir að sam­­þykkja hækk­­un­ina ellegar vera hent á göt­una án húsa­­skjóls. Umhugs­un­­ar­frestur sem leigj­endum er gef­inn til að sam­­þykkja eða hafna til­­­boð­inu er ein­ungis fjórir dag­­ar. Ljóst er að tug­­þús­unda hækkun á leigu gerir væntar hækk­­­anir sem VR er nú að semja um við Sam­tök atvinn­u­lífs­ins að eng­u,“ segir í bréf­in­u. 

Stjórn VR telur að varla sé hægt að lýsa þessu með öðrum orðum en sem grimmd, taum­­lausri græðgi og mann­vonsku. VR seg­ist til­búið að færa fé sem er hjá Kviku í stýr­ingu, sam­tals 4,2 millj­arðar króna, ef ekki verður brugð­ist við gagn­rýni VR.

Auglýsing

Almenna leigu­fé­lagið hafnar mál­flutn­ingi VR og Ragn­ars Þórs. Félagið seg­ist fagna upp­bygg­ingu leigu­fé­laga, þar á meðal félaga sem séu óhagn­að­ar­drif­in. Félagið segir að aldrei hafi verið greiddur arður út úr félag­inu frá stofn­un.

Yfir­lýs­ing Almenna leigu­fé­lags­ins er hér að neð­an, í heild sinn­i: 

Almenna leigu­fé­lagið fagnar allri umræðu um leigu­mark­að­inn á Íslandi, sem hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum og er enn í mót­un. Félagið tekur heils­hugar undir kröfur VR og fleiri um upp­bygg­ingu á félags­legu leigu­hús­næði og óhagn­að­ar­drif­inna félaga líkt og Bjargs, Búseta og Félags­stofn­unar stúd­enta. ­Mál­flutn­ingur Ragn­ars Þórs Ing­ólfs­son­ar, for­manns VR, um Almenna leigu­fé­lagið í opnu bréfi til Kviku er hins vegar óheppi­legt inn­legg í umræð­una um það hvernig byggja megi upp hag­kvæman og fjöl­breyttan leigu­markað til fram­tíð­ar.

Árið 2017 tók Almenna leigu­fé­lagið við rekstri tveggja fast­eigna­safna, ann­ars vegar á Leigu­fé­lag­inu Kletti, í eigu Íbúða­lána­sjóðs (ÍLS), og hins vegar á félag­inu BK-­eign­ir. Rekstur þessa félaga stóð ekki undir sér og var tug­millj­óna tap af leigu­rekstri þeirra árið 2017. Þegar Almenna leigu­fé­lagið tók við Leigu­fé­lag­inu Kletti var það meðal skil­yrða að leigu­verð myndi ekki hækka næstu 12 mán­uði. Vegna rekstr­ar- og fjár­magns­kostn­aðar greiddi Almenna leigu­fé­lagið því háar fjár­hæðir með þessum eign­um.

Und­an­farið ár hefur Almenna leigu­fé­lagið þurft að aðlaga leigu­samn­inga að með­alleigu á mark­aði svo rekst­ur­inn standi undir sér. Það hefur verið gert í skrefum og í lang­flestum til­fellum með rúmum fyr­ir­vara svo leigj­endur fái svig­rúm til að laga sig að breyttum aðstæð­u­m. ­Leigu­verð hefur einnig fylgt verð­bólgu, fast­eigna­gjöldum og öðrum opin­berum gjöld­um, sem hafa hækkað gríð­ar­lega und­an­farin ár með hækk­andi fast­eigna­mati.

Almenna leigu­fé­lagið var stofnað árið 2014 og var fyrsta sér­hæfða leigu­fé­lagið fyrir almenn­ing á Íslandi. Félagið hefur allar götur síðan lagt ríka áherslu á að tryggja ein­stak­lingum og fjöl­skyldum á leigu­mark­aði hús­næð­is­ör­yggi til langs tíma, stöð­ug­leika og góða þjón­ustu að skand­in­av­ískri fyr­ir­mynd. Það hefur tek­ist enda sýna kann­anir stóran hóp ánægðra við­skipta­vina hjá Almenna leigu­fé­lag­inu.

Almenna leigu­fé­lagið er ein­ungis með 4% mark­aðs­hlut­deild á almenna leigu­mark­aðnum og stýrir því ekki verð­myndun á honum eins og stundum hefur verið haldið fram. Félagið er í eigu fjöl­breytts hóps fag­fjár­festa og stofn­ana­fjár­festa, þar á meðal líf­eyr­is­sjóða, trygg­inga­fé­laga og ein­stak­linga. Eign­ar­haldið er dreift og á eng­inn stærri en 10% hlut. Frá stofnun hefur félagið aldrei greitt út arð til hlut­hafa.

Sem fyrr segir tekur Almenna leigu­fé­lagið heils­hugar undir orð VR og fleiri um upp­bygg­ingu á félags­legu leigu­kerfi og óhagn­að­ar­drif­inna félaga. Slíkt er verk­efni sveit­ar­fé­laga og ann­arra opin­berra aðila í sam­vinnu við almanna­sam­tök. Einka­rekin leigu­fé­lög hafa, eins og dæmin sanna frá grann­löndum okk­ar, hlut­verki að gegna á fjöl­breyttum leigu­mark­aði þar sem margir kjósa að leigja frekar en eiga, þótt ekki sé um nið­ur­greidda leigu að ræða. Orð for­manns VR eru því ómak­leg árás á fyr­ir­tæki sem tekið hefur þátt í að ryðja braut­ina fyrir þróun skil­virks leigu­mark­aðar á Ísland­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent