Íslandsbanki segist „mjög stórt fyrirtæki“ og telur laun bankastjóra síns ekki leiðandi

Stjórn Íslandsbanka telur að Birna Einarsdóttir, sem var með 5,3 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra, hafi staðið sig vel í starfi og að horft hafi verið til þess við launaákvörðun. Stjórn telur laun Birnu ekki vera leiðandi né í andstöðu við tilmæli.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, ásamt Friðriki Sophussyni, stjórnarformanni bankans, sem ritaði bréfið.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, ásamt Friðriki Sophussyni, stjórnarformanni bankans, sem ritaði bréfið.
Auglýsing

Stjórn Íslands­banka telur að launa­kjör Birnu Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra bank­ans, séu í sam­ræmi við setta starfs­kjara­stefnu bank­ans. Stjórnin telur einnig að Birna hafi staðið sig afar vel í starfi og að heild­ar­laun henn­ar, sem voru 5,3 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra en 4,8 millj­ónir króna í ár, séu ekki leið­andi eftir að hafa gert sam­an­burð við gögn ann­arra banka­stjóra og for­stjóra á Íslandi sem birst hafi í gögnum úr tekju­blaði Frjálsrar versl­unar og ýmsum árs­reikn­ing­um.

Þetta kemur fram í bréfi sem stjórn Íslands­banka hefur sent Banka­­sýslu rík­­is­ins vegna launa­­mála Birnu. Banka­­sýslan sendi stjórn­inni bréf í síð­­­ustu viku og krafð­ist þar skýr­inga á launa­þróun banka­stjór­ans. Þess var auk þess kraf­ist að svar bær­ist innan viku, eða fyrir lok dags 19. febr­­ú­­ar. Sam­­bæri­­legt bréf var sent til banka­ráðs Lands­bank­ans, sem er einnig í rík­­i­s­eigu og heyrir því undir Banka­­sýslu rík­­is­ins. Það svar­bréf var birt fyrr í dag.

Mjög stórt fyr­ir­tæki

Í bréfi stjórnar Íslands­banka, sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Frið­rik Soph­us­son skrifar und­ir, segir að Íslands­banki sé mjög stórt fyr­ir­tæki á íslenska mæli­kvarða og leið­andi á ýmsum sviðum íslensks atvinnu­lífs. „Bank­inn hefur víð­tækar starfs­heim­ildir skv. lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki og starf­semi bank­ans er marg­þætt og tækni­lega flók­in, sem gerir miklar kröfur til dag­legs stjórn­anda um hæfni og stjórn­un­ar­hæfi­leika. Þá má geta þess að Fjár­mála­eft­ir­litið gengur úr skugga um hæfni og þekk­ingu fram­kvæmda­stjóra með prófum til þess að ganga úr skuffa um að hann upp­fylli þær kröfur og þekk­ingu og hæfni sem lög ger­a.“

Auglýsing
Við ákvörðun launa banka­stjór­ans hafi stjórn meðal ann­ars horft til reynslu banka­stjór­ans, árang­urs, við­skipta­tengsla og hæfni. Mat stjórnar Íslands­banka hafi verið að starfs­ár­angur núver­andi banka­stjóra, Birnu Ein­ars­dótt­ur, hafi verið afar góð­ur. „Hún hefur sinnt starfi sínu af kost­gæfni og verið sterkur leið­togi stjórn­un­arteymis bank­ans, m.a. í stefnu­mótun á umbrota­tím­um. Þá má sér­stak­lega nefnda end­ur­skipu­lagn­ingu lána sem Íslands­banki lauk hraðar en keppi­naut­arn­ir. Á sama tíma tók bank­inn yfir starf­semi tveggja fjár­mála­fyr­ir­tækja og sam­þætti sínum rekstri. Tek­ist hefur með skipu­legum hætti að ná fram slíkri hag­ræð­ingu í starf­semi bank­ans að starfs­menn eru nú færri en þeir voru fyrir sam­ein­ing­arn­ar.“

Stjórnin telur einnig til að fjár­mála­tíma­ritið Euromo­ney hafi valið Íslands­banka besta banka á Íslandi á árinu 2018 og að það væri í fimmta sinn sem bank­inn hlyti þá við­ur­kenn­ingu. Þá hafi ánægja við­skipta­vina Íslands­banka mælst mik­il, hann hlotið Hvatn­ing­ar­verð­laun jafn­rétt­is­mála og bank­inn rekið öfl­ugt fræðslu­starf.

Í svari stjórn­ar­innar segir að starfs­kjara­nefnd og stjórn bank­ans fari reglu­lega yfir sam­an­burð á launa­kjörum banka­stjóra „við launa­kjör for­stjóra á Íslandi og hefur til þess stuðst við gögn úr Frjálsri versl­un, árs­reikn­ingum skráðra fyr­ir­tækja sem og árs­reikn­ingum ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja. Stjórn telur þann sam­an­burð sýna að laun banka­stjóra séu ekki leið­and­i.“

Bank­anum beri að bjóða starfs­kjör sem séu sam­bæri­leg því sem ger­ist í starfs­um­hverfi bank­ans og nið­ur­staða stjórnar hafi verið sú að stjórnin hafi fylgt starfs­kjara­stefnu bank­ans við ákvörðun á launa­kjörum Birnu „til sam­ræmis við þær óskir sem fram voru settar í bréfi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins frá 6. jan­úar 2017. Breyt­ing­arnar á launa­kjörum banka­stjóra Íslands­banka eru vel innan við almenna launa­þróun frá þeim tíma.“

Launin voru aldrei í sam­ræmi við ákvörðun kjara­ráðs

Bréf fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem vísað er í var sent af Bene­dikt Jóhann­essyni þegar hann stýrði því ráðu­neyti í upp­hafi árs 2017. Í því var til­mælum beint til stjórna rík­is­fyr­ir­tækja að gæta var­kárni við launa­á­kvarð­anir þegar ákvörð­un­ar­vald yfir slíkum færð­ist frá kjara­ráði og yfir til stjórn­anna um mitt ár 2017.

Í jan­úar 2017 úrskurð­aði kjara­ráð að lækka ætti laun Birnu í rúm­lega tvær millj­ónir króna á mán­uði. Sú launa­lækkun kom þó aldrei til fram­kvæmda þar sem Birna var með tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest. Ákvörðun um launa­kjör hennar færð­ist svo aftur til stjórnar Íslands­banka um mitt ár 2017 sem ákvað að hækka laun hennar enn frekar frá því sem áður var, en ekki lækka.

Birna óskaði sjálf eftir því að grunn­laun hennar yrðu lækkuð síðla á árinu 2018. Sú breyt­ing tók gildi í byrjun þessa árs. Sam­kvæmt útreikn­ingum Morg­un­blaðs­ins eru heild­ar­laun og hlunn­indi hennar á þessu ári 4,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Það er um einni milljón króna meira en laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Lands­bank­ans, hins rík­is­bank­ans, en laun hennar eru nú 3,8 millj­ónir króna á mán­uði. Þau hafa hækkað um 82 pró­sent frá miðju ári 2017 með vísun í að launin hafi ekki verið sam­an­burð­ar­hæf við önnur í geir­an­um.

Hægt er að lesa bréf stjórnar Íslands­banka til Banka­sýslu rík­is­ins í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent