Rannsóknir skiptastjóra þrotabús Primera Air á Íslandi, sem var í eigu Andra Más Ingólfssonar, „hafa leitt í ljós að mögulegt sé að fyrirsvarsmenn félagsins hafi bakað því tjón“ í að minnsta kosti tveimur tilvika. Þá hefur skiptastjóri þrotabúsins það til skoðunar hvernig staðið var að reikningsskilum „þrotamannsins“ að öðru leyti.
Í skýrsluni kemur jafnframt fram að athugun skiptastjóra á reikningsskilum flugfélagsins kunni að leiða til þess að þrotabúið geti sótt frekari fjárkröfur á hendur þeim sem báru ábyrgð á reikningsskilunum. Þá hyggst skiptastjóri höfða riftunarmál fyrir dómstólum, meðal annars á hendur Andra persónulega vegna tveggja ráðstafana Primera Air að fjárhæð samtals 520 milljónir. Frá þessu er greint frá í Markaðinum í dag.
Mögulegt að þrotabúið geti sótt frekari fjárkröfur á hendur þeim sem báru ábyrgð á reikningsskilum
Primera Air hætti í október síðastliðinn starfsemi eftir fjórtán ár í rekstri og var flugfélagið, ásamt dótturfélögum sínum í Danmörku og Lettlandi, í kjölfarið tekið til gjaldþrotaskipta. Stjórnendur flugfélagsins sögðu að horfur á flugmarkaði hefðu farið hratt versnandi, með hækkandi olíuverði og lækkandi flugfargjöldum, og ekki hefði tekist að tryggja félaginu fjármögnun til langs tíma. Lýstar kröfur í búið nema rúmlega 10 milljörðum króna og af þeim nema kröfur frá Arion banka samtals um 4,8 milljörðum.
Skiptastjóri þrotabúsins, Eiríkur Elís Þorláksson hæstaréttarlögmaður, lagði fram skýrslu skiptastjóri á skiptafundi þrotabúsins Primera air í gær, en Markaðurinn hefur hana undir höndunum. Í skýrslu skiptastjóra segir að athugun hans á reikningsskilum flugfélagsins kunni að leiða til þess að þrotabúið geti sótt frekari fjárkröfur á hendur þeim sem báru ábyrgð á reikningsskilunum. Endurskoðendur Primera Air voru frá ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte.
Greint hefur verið frá því endurskoðendur sem rýndu í ársreikninga félaga innan Primera-samstæðunnar í fyrra, fyrir árið 2017, teldu vafa leika á því að þeir væru í samræmi við lög, reglur og góða endurskoðunarvenju. Endurskoðendur töldu það til að mynda vandséð að víkjandi lán sem Primera Air var veitt frá tengdum aðilum árið 2017 og breytti neikvæðri eigin fjárstöðu í jákvæða geti talis til eigin fjár félagsins. Ennfremur sögðu þeir það óvíst hvort að félaginu hafi verið heimilt að innleysa 13,3 milljóna evra söluhagnað á árinu 2017 vegna endursölu á Boeing-flugvélum sem voru enn í smíðum og yrðu afhentar í apríl árið 2019. Andri Már Ingólfsson, aðaleigandi Primera-samstæðunnar, hafnaði því hins vegar í kjölfarið að ranglega hafi verið staðið að gerð ársreikninga félaganna.
Meta hvort að það sé grundvöllur fyrir skaðabótakröfu
Samkvæmt skýrslunni lýsti skiptastjóri yfir riftun á tveimur ráðstöfunum Primera Air að fjárhæð samtals um 520 milljónir króna í nóvembermánuði í fyrra. Þeim riftunum hefur báðum verið mótmælt en skiptastjóri þrotabúsins hyggst höfða riftunarmál, meðal annars á hendur Andra Má persónulega, og láta reyna á endurheimt þeirra verðmæta fyrir dómstólum. Í umfjöllun Markarðins segir að á skiptafundi Primera Air í gær hafi verið ákveðið að Arion banki, sem stærsti kröfuhafi búsins, fengi frest til tveggja vikna til að taka afstöðu um hvort höfða eigi riftunarmál. En Arion banki þurfti að færa niður tæplega 3 milljarða króna í ábyrgðum og lánveitingum vegna gjaldþrots Primera.
Jafnframt segir í skýrslunni að komið hafi fram við skýrslutökur að töluverð seinkun hafi orðið á afhendingu Airbus flugvéla til Primera á árinu 2018. Það hafi kostað félagið umtalsverða fjármuni að leigja aðrar vélar í staðinn til að sinna áætlunarflugi. Engar bætur hafi fengist vegna þessara tafa og fram kemur í skýrslunni að skiptastjóri hafi leitast við að fá upplýsingar frá stjórnendum Primera svo hægt sé að meta hvort grundvöllur geti verið fyrir skaðabótakröfu.
Almennar kröfur nema um 7.080 milljónum króna
Samþykktar lýstar veðkröfur í búið, frá Arion banka og Landsbankanum, eru samtals 1.975 milljónir og af þeim nema kröfur Arion banka 1.755 milljónum. Fram kemur í skýrslu skiptastjóra að stærstur hluti viðurkenndra veðkrafna Arion banka muni enda sem almenn krafa þar sem undirliggjandi veðtrygging bankans dugar ekki til fullnustu veðkrafnanna.
Samtals nema almennar kröfur, án tillits til veðkrafna Arion banka, um 7.080 milljónum króna. Arion banki er einnig stærsti almenni kröfuhafinn með lýstar kröfur upp á rúmlega 2,5 milljarða en aðrir stórir kröfuhafar eru Primera Travel Group með 1.478 milljóna kröfu og þá hefur félag í eigu dönsku ferðaskrifstofunnar Bravo Tours lýst kröfu í búið að fjárhæð tæplega 1.400 milljónir króna. Eftirstæðar kröfur í þrotabúið nema samtals um 1.019 milljónum króna. Ekki hefur verið tekin afstaða til almennra og eftirstæðra krafna að svo stöddu.
Gæti verið að það fáist ekkert upp í almennar kröfur
Að lokum segir í skýrslunni að teknu tilliti til áfallins óreikningsfærðs skiptakostnaðar upp á 12 milljónir, sem og kostnaðar sem mun falla til við þær aðgerðir skiptastjóra sem hann hyggst ráðast í, muni ekki fást neitt upp í almennar kröfur nema búið endurheimti þá fjármuni sem aðgerðir skiptastjóra miða að að verði sóttir.