Fundur samninganefndar Eflingar samþykkti í kvöld að láta fara fram almenna leynilega rafræna allsherjaratkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar meðal þeirra félagsmanna Eflingar sem vinna skv. kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Eflingar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis vegna vinnu starfsfólks í veitinga- og gistihúsum og hliðstæðri starfsemi og sem rann út þann 31.desember 2018.
Samningaviðræðum hefur verið slitið, eins og fram kom í dag.
Vinnustöðvunin tekur til veitinga- og hótelþjónustu, að því er samþykkt var á fundi samninganefndar í kvöld.
„Vinnustöðvunin taki til allra þrifa, hreingerninga og frágangs herbergja og annarrar gistiaðstöðu þ.m.t. á göngum, salernum og í sameiginlegu rými á öllum hótelum og gistihúsum á því félagssvæði Eflingar-stéttarfélags sem tekur til starfa á veitinga- og gistihúsum sem nánar tilgreint er lögsagnar umdæmi Reykjavíkur, Kópavogs, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og Kjósarsýslu að Botnsá, Grímsnes og Grafningshrepps, Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfus auk Hafnarfjarðar og Garðabæjar.Vinnustöðvun ofangreindra félagsmanna er tímabundin og hefst klukkan 10:00 að morgni 8. mars 2019 og lýkur klukkan 23:59 þann 8. mars 2019 nema kjarasamningar hafi tekist fyrir þann tíma. Atkvæðagreiðslunni skal lokið eigi síðar en kl.22:00, fimmtudaginn 28.2 2019,“ segir í samþykkt samninganefndar Eflingar.
Félagsmenn í Eflingu eru um 18 þúsund. Félagsmenn í VR, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur, sem stóðu saman að því að slíta viðræðum, eru um 35 þúsund, og samanlagt eru því um 53 þúsund félagsmenn í þessum þremur stéttarfélögum.