Efling lýsir yfir vonbrigðum með athugasemdir SA vegna atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hótelþerna þann 8. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Samtök atvinnulífsins sendu frá sér tilkynningu í morgun þar sem þau skoruðu á Eflingu að stöðva nú þegar atkvæðagreiðslu um verkfall sem koma á til framkvæmda 8. mars næstkomandi. SA telja ólöglega staðið að atkvæðagreiðslu um verkfallið.
Verði Efling ekki við áskorun Samtaka atvinnulífsins munu SA höfða félagsdómsmál gegn stéttarfélaginu. Niðurstaða dómsins mun, samkvæmt SA, liggja fyrir áður en verkfalli er ætlað að koma til framkvæmda.
Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar segir fullyrðingar SA fjarri lagi og athugasemdirnar augljóslega til þess ætlaðar að hindra félagsmenn Eflingar í að nýta lýðræðisleg réttindi sín.
Formaður kjörstjórnar Eflingar þegar svarað SA
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist harma afskipti SA og einsakra atvinnurekenda af kosningunum. „Það er með ólíkindum að sjá hagsmunaaðila reyna að stöðva þá miklu upprisu verkafólks sem nú er í gangi,“ segir Sólveig. Hún hefur varið morgninum í verkfallskosningabíl Eflingar sem ekið hefur milli hótela. „Það hefur verið magnað og ótrúlegt að fylgjast með undirtektum Eflingarfélaga. Allir eru ólmir að kjósa og mikill hugur í fólk,“ segir Sólveig.
Í tilkynningu Eflingar áréttar Viðar að allur undirbúningur og framkvæmd kosninganna hafi verið í samræmi við viðeigandi reglur. Þar sé um að ræða lög um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80 frá 1938, lög Eflingar og Reglugerð ASÍ um leynilega allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna aðildarsamtaka. „Lögmenn okkar og formaður kjörstjórnar hafa að sjálfsögðu yfirfarið þessar reglur mjög vandlega,“ segir Viðar. Hann segir Eflingu vísa athugasemdum SA alfarið á bug og að formaður kjörstjórnar Eflingar hafi þegar svarað SA.