Vöru- og þjónustuviðskipti skila halla á ársfjórðungi í fyrsta skipti í 10 ár

Vöru- og þjónustujöfnuður á fjórða ársfjórðungi 2018 var neikvæður um 3,5 milljarða króna en hann var jákvæður um 14,2 milljarða á sama tíma árið 2017. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2008 sem vöru- og þjónustuviðskipti skila halla á ársfjórðungi.

7DM_9897_raw_2237.JPG
Auglýsing

Vöru- og ­þjón­ustu­jöfn­uð­ur á fjórða árs­fjórð­ung­i 2018, eins og hann birt­ist í þjóð­hags­reikn­ingum og greiðslu­jöfn­uði, var nei­kvæður um 3,5 millj­arða króna, sam­kvæmt bráða­brigða­töl­u­m Hag­stofu Ís­lands. Hann var aftur á móti jákvæður um 14,2 millj­arða á sama tíma árið 2017, á gengi hvort árs. 

Í grein­ingu Arion ­banka á tölum hag­stof­unnar segir að vöru- þjón­ustu­jöfn­uð­ur­inn á fjórða árs­fjórð­ungi hafi verið nokkur lak­ari en grein­gar­deild bank­ans hafði spáð en bank­inn gerði ráð fyrir afgangi upp á tæpa tvo millj­arða króna. Sam­kvæmt bank­anum er þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2008 sem vöru- og þjón­ustu­við­skipti skila halla á árs­fjórð­ungi.

42,4 pró­sent sam­dráttur á milli ára í þjón­ustu­við­skiptum

Umreikn­aður vöru­skipta­jöfn­uður var óhag­stæður um 37 millj­arða króna en þjón­ustu­jöfn­uður var hag­stæður um 33,4 millj­arða á fjóra árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt bráða­brigða­tölum Hag­stof­unn­ar. Heild­ar­út­flutn­ings­tekjur á fjórða árs­fjórð­ungi 2018, vegna vöru- og þjón­ustu­við­skipta, námu tæpum 329,5 millj­örðum króna en heild­ar­inn­flutn­ingur á vörum og þjón­ustu nam rúmum 333 millj­örðum króna. 

Auglýsing

Utanríkisviðskipti á fjórða ársfjórðung Mynd: Arion bankiÍ grein­ing­u ­Arion ­banka segir að það hafi verið við­búið að afgangur af þjón­ustu­við­skiptum myndi minnka á milli ára enda hafi „óveð­ur­skýin hrann­ast upp hjá ferða­þjón­ust­unni síð­ustu mán­uð­i.“ Það reynd­ist rétt en afgangur af þjón­ustu­við­skiptum nam 33,4 millj­arða króna á fjórða árs­fjórð­ungi, sem svarar 42,4 pró­sent sam­drætti á milli ára á föstu gegni, sam­kvæmt grein­ingu bank­ans. Í grein­ingu bank­ans segir að það sé hins vegar ekki ferða­þjón­ustan en tekjur af erlendum ferða­mönn­um, ferða­lög og far­þega­flutn­ing­ar, námu 103 millj­örðum á fjórða árs­fjórð­ung. 

Í grein­ing­unni segir að það hafi hins vegar verið annar útflutn­ing­ur, óferða­þjón­ustu­tengdur útflutn­ing­ur, sem olli mis­mun­in­um. Þar vegar þyngst gjöld fyrir notkun hug­verka, sem á rætur sínar að rekja til útflutn­ings á hug­verkum fyr­ir­tækja í lyfja­iðn­aði. Þessi liður hefur und­an­farin ár verið mjög stór á síð­ari hluta árs­ins, en þá virð­ist sem greiðslur séu færðar til bók­ar. Árið 2017 komu nær allar greiðsl­urnar inn á fjórða árs­fjórð­ung, þá 25,5 millj­arðar en árið 2018 dreifð­ust þær yfir seinni helm­ing árs­ins, 25 millj­arða sam­tals en aðeins 10 millj­arðar voru bók­færðir á fjórða árs­fjórð­ung. Sam­kvæmt bank­anum útskýrir þetta að miklu leyti þann 42,3 pró­sent sam­drátt þjón­ustu­af­gangs á milli ára,

Mun minni afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum í fyrra 

Ef skoð­aðar eru bráða­birgða­tölur Hag­stof­unnar fyrir árið 2018 í heild, var vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður 2018 jákvæður um 86,5 millj­arða sam­an­borið við 106,8 millj­arða fyrir 2017. Það sam­svarar um 20 pró­sent sam­drætti á milli ára. Heild­ar­út­flutn­ings­tekjur árið 2018 vegna vöru- og þjón­ustu­við­skipta námu 1.323,4 millj­örðum króna en heild­ar­inn­flutn­ingur nam 1.236,8 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent