Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, sem verið hefur formaður Bændasamtaka Íslands frá árinu 2013, hefur verið ráðinn svæðisstjóri Arion banka á Vesturlandi.
Sigurgeir Sindri er búfræðingur að mennt, hefur stundað nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst og meðal annars starfað sem stundakennari við bændadeild Landbúnaðarháskóla Íslands.
Hann tekur við starfinu af Eyjólfi Vilberg Gunnarssyni sem hefur tekið við sem forstöðumaður bíla- og tækjafjármögnunar Arion banka. Sigurgeir Sindri mun hefja störf hjá bankanum 1. apríl, samkvæmt tilkynningu.
Auglýsing