Landsvirkjun hagnaðist um 14 milljarða króna

Skapast skilyrði til að auka arðgreiðslur Landsvirkjunar í skrefum til eiganda sín, íslenska ríkisins, eftir miklar framkvæmdir og skuldaniðurgreiðslur á undanförnum árum.

Annar áfangi aflstöðvarinnar á Þeistareykjum hóf starfsemi í fyrra.
Annar áfangi aflstöðvarinnar á Þeistareykjum hóf starfsemi í fyrra.
Auglýsing

Lands­virkj­un, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 14 millj­arða króna, eða 121 milljón dala, á síð­asta ári. Rekstr­ar­tekjur félags­ins hækk­uðu um 50,8 millj­ónir dala á milli ára og námu 533,9 millj­ónum dala, eða 61,9 millj­örðum króna. EBITDA hagn­aður (rekstr­­ar­hagn­aður fyrir fjár­­­magns­­kostn­að, skatta og afskrift­ir) var 45,2 millj­arðar króna og EBITDA hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins var 73 pró­sent af tekj­um.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar sem birtur var í dag.

Þar er haft eftir Herði Arn­ars­syni, for­stjóra Lands­virkj­un­ar, að árið 2018 hafi verið gott ár í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. „Tekjur hækk­uðu um 11% milli ára og hafa aldrei verið meiri, en þar mun­aði mestu um aukið selt magn og hækk­andi álverð.

Auglýsing

Átj­ánda afl­stöð Lands­virkj­un­ar, Búr­fells­stöð II, var tekin í gagnið á árinu, auk þess sem annar áfangi þeirrar sautj­ándu, á Þeista­reykj­um, hóf rekst­ur. Raf­orku­salan jókst um 430 gíga­vatt­stundir frá fyrra ári og var um 14,8 tera­vatt­stund­ir.

Áfram bætt­ist við hóp við­skipta­vina stórnot­enda hjá fyr­ir­tæk­inu á árinu. Gerðir voru raf­magns­samn­ingar við tvo aðila í gagna­vers­iðn­aði; Advania Data Centers og Etix Everywhere Iceland. Hópur við­skipta­vina er nú fjöl­breytt­ari en nokkru sinni fyrr.“

Skuldir lækka

Lands­virkjun hefur lagt mikla áherslu á að lækka skuldir síð­ustu ár. Nettó skuldir fyr­ir­tæk­is­ins um síð­ustu ára­mót voru um 1.884,6 millj­ónir dala,  218,6 millj­arðar króna, og lækk­uðu um 158 millj­ónir dala í fyrra. Hand­bært fé frá rekstri 295,8 millj­ónum dala, 34,3 millj­örðum króna, sem er hækkun upp á 6,4 pró­sent frá fyrra ár

Hörður segir að eftir fram­kvæmdir síð­ustu ára, sem hafi að mestu verið fjár­magn­aðar með sjóðs­streymi, haldi nettó skuldir nú áfram að lækka. „Hlut­fall nettó skulda á móti EBIT­DA-­rekstr­ar­hagn­aði er nú komið niður í 4,8 og hefur skuld­setn­ing á þennan mæli­kvarða aldrei verið minni í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Nú hafa skap­ast skil­yrði til að auka arð­greiðslur Lands­virkj­unar í skrefum til eig­anda síns, en síð­ast­lið­inn ára­tug hefur fyr­ir­tækið fjár­fest fyrir um einn millj­arð doll­ara í nýjum orku­mann­virkjum og á sama tíma greitt niður skuldir fyrir einn millj­arð doll­ara.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent