Stjórn VR samþykkti á fundi þann 25. febrúar að boða til leynilegrar atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og í gistiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði. Verkfallsaðgerðirnar dreifast á 15 daga en verði þær samþykktar er fyrsta verkfall fyrirhugað 22. mars. Verði ekki gengið frá samningum er stefnt á ótímabundna vinnustöðvun 1. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR
Aðeins félagsmenn VR í þeim tuttugu hótelum og hópbifreiðafyrirtækja, sem ekki eru tilgreind sérstaklega, munu kjósa um verkfall. Fyrst kæmi til eins dags verkfalls 22. mars og svo allt að fimm tveggja og þriggja daga verkfalla fram að ótímabundnu verkfalli 1. maí.
Hótel og hópbifreiðar
„Kjarasamningur VR og Samtaka atvinnulífsins rann út þann 31. desember 2018 og er nýr kjarasamningur ekki í sjónmáli. Atvinnurekendur höfnuðu kröfum félagsins og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara þann 21. desember 2018. Þann 21. febrúar, mat félagið það svo að viðræður hefðu reynst árangurslausar, þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara,“ segir í tilkynningu VR
VR hefur því efnt til leynilegrar atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og hjá eftirfarandi fyrirtækjum með staðsetningu í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Hveragerði.
- Fosshótel Reykjavík ehf.
- Íslandshótel hf.
- Flugleiðahótel ehf.
- Cabin ehf.
- Hótel Saga ehf.
- Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf.
- Hótel Klettur ehf.
- Örkin Veitingar ehf.
- Keahótel ehf.
- Hótel Frón ehf.
- Hótel 1919 ehf.
- Hótel Óðinsvé hf.
- Hótel Leifur Eiríksson ehf.
- Hótel Smári ehf.
- Fjörukráin ehf. (Hotel Viking)
- Hótel Holt Hausti ehf.
- Hótelkeðjan ehf.
- CapitalHotels ehf.
- Kex Hostel
- 101 hótel ehf.
Kosið er um að samþykkja eða hafna verkfallsaðgerðum samkvæmt eftirfarandi dagsetningum:
- Frá klukkan 00:01 til klukkan 23:59 þann 22. mars 2019 (1 dagur)
- Frá klukkan 00:01 þann 28. mars 2019 til klukkan 23:59 þann 29. mars 2019 (2 dagar)
- Frá klukkan 00:01 þann 3. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 5. apríl 2019 (3 dagar)
- Frá klukkan 00:01 þann 9. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 11. apríl 2019 (3 dagar)
- Frá klukkan 00:01 þann 15. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 17. apríl 2019 (3 dagar)
- Frá klukkan 00:01 þann 23. apríl 2019 til klukkan 23:59 þann 25. apríl 2019 (3 dagar)
- Ótímabundin vinnustöðvun frá klukkan 00:01 þann 1. maí 2019.