Óska eftir stjórnsýsluendurskoðun á starfsemi Tryggingastofnunar

Níu þingmenn sem sitja í velferðarnefnd hafa óskað eftir að ríkisendurskoðandi geri stjórnsýsluendurskoðun á starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins. Þau vilja að kannað sé hvort réttindi lífeyrisþega séu tryggð að fullu í samskiptum við stofnunina

Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna sitja í velferðarnefnd.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna sitja í velferðarnefnd.
Auglýsing

Níu þing­menn sem sitja í vel­ferð­ar­nefnd hafa óskað eftir því að rík­is­end­ur­skoð­andi geri stjórn­sýslu­end­ur­skoðun á starf­semi Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins. Óskað er eftir því að í skýrsl­unni verði dregið fram hvernig stofn­un­inni hefur tekst að upp­fylla lög­bundið hlut­verk sitt. Í grein­ar­gerð beiðn­innar segir að Trygg­inga­stofnun hafi skert líf­eyr­is­greiðslur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega í um ára­tug án laga­heim­ild­ar. Þús­undir manns hafi orðið fyrir skerð­ingu vegna bresta í máls­með­ferð stofn­un­ar­inn­ar. Því sé það mik­il­vægt að við slíkar aðstæður sé kannað hvort rétt­indi líf­eyr­is­þega séu tryggð að fullu í sam­skiptum þeirra við stofn­un­ina. Óskað er eftir að rík­is­end­ur­skoð­andi skili Alþingi skýrslu eigi síðar en 1. júní 2019. 

Trygg­inga­stofnun skert líf­eyr­is­greiðslur án heim­ilda

Í stjórn­ar­skránni er kveðið á um að stjórn­völd hafi skyldu til að ­tryggja í lögum aðstoð við örorku-, end­ur­hæf­ing­ar- og elli­líf­eyr­is­þega. Í grein­ar­gerð­inni segir að það sé því afar mik­il­vægt að sú stofnun sem hefur það hlut­verk að ann­ast fram­kvæmd líf­eyr­is­trygg­inga almanna­trygg­inga gæti í hví­vetna að rétt­indum ein­stak­ling­anna, ellegar bregð­ist stjórn­völd stjórn­ar­skrár­bund­inni skyldu sinni gagn­vart almenn­ing­i. 

Í grein­ar­gerð­inni segir að þeir sem þiggi bætur frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins séu oft í tekju­lægstu hópum sam­fé­lagsin og sá líf­eyrir sem þeir hljóti frá stofn­unni sé oft­ast eina eða helsta uppi­staðan í tak­mörk­uðum tekjum þeirra. Þessir hópar reiði sig því að miklu leyti á greiðslur Trygg­inga­stofn­unar til lífs­við­ur­væris og því afar mik­il­vægt að staða þeirra í sam­skiptum við stofn­un­ina sé trygg og rétt­indi þeirra virt í hví­vetna. Því telj­i ­þing­menn­irn­ir það því sér­stak­lega nauð­syn­legt að vönduð stjórn­sýsla sé við­höfð við með­ferð mála þegar íþyngj­andi ákvarð­anir um skerð­ingu líf­eyr­is­rétt­inda eru tekn­ar. Í því sam­bandi sé jafn­framt nauð­syn­legt að þau lög sem um stofn­un­ina gilda tryggi að ákvarð­anir um skerð­ingu rétt­inda verði ekki teknar nema fyrir þeim sé við­hlít­andi laga­heim­ild. 

Auglýsing

Aftur á móti hafi að und­an­förnu komið í ljós dæmi um bresti í máls­með­ferð Trygg­inga­stofn­un­ar. Þús­undir manns hafi orðið fyr­ir­ skerð­ing­um ­vegna túlk­unar stofn­un­ar­innar á ákveðnum ákvæðum í lögum um almanna­trygg­ing­ar. Þá hafi ein­stak­lingar sem búið hafa erlend­is, en innan EES-­svæð­is­ins, orðið fyrir skerð­ingum á rétti sínum til örorku­líf­eyris á grund­velli beit­ingar ákvæð­anna. Umboðs­maður Alþingis hafi hins vegar komst að þeirri nið­ur­stöðu að slíkt væri rangt í áliti í máli nr. 8955/2016.  „Þannig hefur Trygg­inga­stofnun rík­is­ins skert líf­eyr­is­greiðslur örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þega í um ára­tug án laga­heim­ild­ar. Mik­il­vægt er við slíkar aðstæður að kanna hvort rétt­indi líf­eyr­is­þega séu tryggð að fullu í sam­skiptum þeirra við stofn­un­ina,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Óskað eftir ábend­ingum um hvaða aðgerðir þurfi að grípa til

Tryggingastofnun Mynd: RÚVSkýrslu­beiðnin er lögð fram af öllum nefnd­ar­mönnum vel­ferð­ar­nefndar Alþingis að frá­töldum Ásmundi Frið­riks­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í skýrslu­beiðn­inni er meðal ann­ars óskað eftir því að að rík­is­end­ur­skoð­andi meti árangur Trygg­inga­stofn­unar við fram­kvæmd líf­eyr­is­trygg­inga almanna­trygg­inga sam­kvæmt lög­um. Auk þess að kannað sé hvort að starf­semi Trygg­inga­stofn­unar og þær verk­lags­reglur sem stofn­unin hefur sett sér um með­ferð stjórn­sýslu­mála sé í sam­ræmi við sjón­ar­mið um mál­efna­lega og við­ur­kennda stjórn­sýslu­hætt­i. 

Jafn­framt óska þing­menn­irnar eftir að kannað verði hvort fram­lög rík­is­ins til stofn­un­ar­innar tryggi með full­nægj­andi hætti að hún geti sinnt því hlut­verki sem henni er falið. Að auki sé ­stuðn­ingur félags­mála­ráðu­neytis við starf­semi Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins kann­aður og við­brögð ráðu­neyt­is­ins við athuga­semdum um mein­bugi á lögum og reglu­gerðum sem tor­veldað gætu störf Trygg­inga­stofn­unar met­in. Að lokum er óskað eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun komi með ábend­ingu­ar um til hvaða aðgerða þurfi að grípa þannig að Trygg­inga­stofnun megi sem best sinna lög­bundnu hlut­verki sínu svo að vönduð og mál­efna­leg stjórn­sýsla verði tryggð í starf­semi stofn­un­ar­inn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent