Tekjur íslenskra fjölmiðla lækkuðu lítillega á árinu 2017 frá fyrra ári, eða um tvö prósent. Samanlagðar tekjur fjölmiðla námu 27,9 milljörðum króna árið 2017. Tekjur af notendagjöldum voru tæpir 15 milljarðar og af auglýsingum og kostun rúmlega 13 milljarður króna. Hlutdeild einkarekinna fjölmiðla nam 78 prósent af samanlögðum tekjum á fjölmiðlamarkaði og 84 prósent af auglýsingatekjum árið 2017, á móti 22 prósenta og 16 prósenta hlut Ríkisútvarpsins.
Í kjölfar hrunsins drógust tekjur fjölmiðla talsvert saman en samanlagðar tekjur fjölmiðla árið 2017 hafa lækkað um 18 prósent frá því þegar best lét árin 2006 og 2007. Í dag fellur helmingur tekna fjölmiðla fellur til sjónvarps og fjórðungur til dagblaða og vikublaða. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands um tekjur fjölmiðla.
Tekjur af útgáfu blaða og tímarita hafa lækkað hátt í helming frá árinu 2006
Talsverður samdráttur varð í tekjum fjölmiðla í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 en frá árunum 2007 til 2010 lækkuðu tekjur fjölmiðla um ríflega fjórðung. Síðan þá hafa tekjurnar aukist lítillega, þær eru nú sambærilegar við það sem var í kringum aldamótin og næstu árin þar á eftir. Þrátt fyrir samdrátt í tekjum varð þetta minni samdráttur hérlendis en hjá fjölmiðlum í öðrum löndum, samkvæmt Hagstofunni. Mestu munaði um samdrátt í auglýsingatekjum, en þær eru nú 28 prósent lægri í dag þær voru hæstar árið 2007, reiknað á föstu verðlagi. Á sama tíma hafa áskrifartekjur lítillega hækkað eða um eitt prósent.
Tekjusamdráttarins gætir á ólíkan hátt eftir miðlum, en samdrátturinn er mestur í útgáfu blaða og tímarita. Samkvæmt niðurstöðum Hagstfounnar má það að miklu leyti rekja til breyttrar fjölmiðlanotkunar með tilkomu nýrra og fjölbreyttari leiða við miðlun sjónvarps og myndefnis, ásamt sífellt aukinnar netnotkunar almennings og greiðslu auglýsenda fyrir birtingu auglýsinga á erlendum vefmiðlum. Tekjur af útgáfu blaða og tímarita hafa þannig lækkað hátt í helming að raunvirði frá árinu 2006. Á sama tíma hafa tekjur hljóðvarps aukist um 13 prósent og sjónvarps um fjögur prósent, á meðan tekjur vefmiðla hafa meira en fjórfaldast á föstu verðlagi.
Hlutur Ríkisútvarpsins 22 prósent af heildartekjum fjölmiðla
Frá því að einkaréttur Ríkisútvarpsins var afnuminn í ársbyrjun 1986 og starfsemi einkarekinna hljóðvarps- og sjónvarpsstöðva hófst lækkaði hlutdeild RÚV í tekjum hljóðvarps og sjónvarps hratt. Frá árinu 1997 hefur hlutur Ríkisútvarpsins í heildartekjum fjölmiðla lækkað úr 26 prósent í 22 prósent árið 2017.
Árið 2017 féllu um 58 prósent tekna af hljóðvarpi og um 29 prósent tekna af sjónvarpsstarfsemi í hlut Ríkisútvarpsins, eða alls 35 prósent af samanlögðum tekjum hljóðvarps- og sjónvarps. Af tæplega 28 milljarða króna tekjum fjölmiðla árið 2017 runnu 21,7 milljarðar króna til fjölmiðla í einkaeigu á móti tæplega 6,2 milljörðum króna til Ríkisútvarpsins.
Hlutdeild RÚV í auglýsingatekjum fjölmiðla 16 prósent
Eftir að starfsemi einkarekinna hljóðvarps- og sjónvarpsstöðva hófst lækkaði hlutdeild í RÚV eðlilega einnig í auglýsingatekjum. En samkvæmt Hagstofunni jókst hlutur þess á ný í samanlögðum auglýsingatekjum sjónvarps frá hruni. Hlutdeild þess hefur frá árinu 2010 að mestu staðið í stað, eða verið milli 45 til 48 prósent, en árið 2017 var hlutdeild RÚV 48 prósent. Hins vegar hefur hlutur RÚV í auglýsingatekjum hljóðvarps lækkað talsvert frá 2013, eða úr 45 í 34 prósent árið 2017.
Í heildina var hlutdeild RÚV í auglýsingatekjum fjölmiðla 16 prósent árið 2017. Það ár runnu 11 milljarðar króna af auglýsingatekjum fjölmiðla til einkaaðila á móti tveimur milljörðum króna sem féllu í hlut Ríkisútvarpsins. Á sama tíma nam hlutdeild þess í auglýsingatekjum hljóðvarps 34 prósent og 48 prósent í auglýsingatekjum sjónvarps. Samanlögð hlutdeild Ríkisútvarpsins á útvarpsmarkaði árið 2017 var 41 prósent.