Óvissa til staðar sem tengist kjarasamningum

Már Guðmundsson segir að sú lækkun á gengi krónunnar sem átt hafi sér stað frá því í haust hafi verið velkomin. Áhyggjur af stöðu WOW air hafi orðið til þess að endurmat hafi átt sér stað á allri stöðu efnahagslífsins.

Már Guðmundsson
Auglýsing

„Það eru áhættu­þættir sem tengj­ast því að hér mynd­ist mik­ill efna­hags­legur óstöð­ug­leiki og vænt­ingar þró­ast um að gengi krón­unnar muni lækka all veru­lega. Ef það ger­ist þá eru ein­hverjir sem vildu losna út áður en það geng­is­fall ætti sér stað.“

Þetta sagði Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni, þar sem þeir ræddu um stöðu efna­hags­mála og mögu­legan flótta fjár­magns úr landi með til­heyr­andi veik­ingu krón­unn­ar.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an:



Már segir að það sé auð­vitað til staðar óvissa sem teng­ist kjara­samn­ing­um, en slíkum hefur enn ekki verið náð á vinnu­mark­aði og verk­föll eru haf­in.

Sú lækkun sem orðið hefur á gengi krón­unnar frá því í haust hafi hins vegar verið vel­komin „Við vorum með áhyggjur af því á fyrri hluta síð­asta árs að krónan væri kannski komin upp fyrir sitt jafn­vægi. Síðan á haust­mán­uðum þá koma þessar áhyggjur um flug­rekst­ur­inn, nátt­úru­lega WOW air, og end­ur­mat á allri stöðu efna­hags­lífs­ins. Við­skipta­kjörin höfðu versnað og efna­hags­horf­urnar orðnar verri. Þá var bara eðli­legt að gengið bregð­ist við því. Að mestu leyti var sú geng­is­lækkun bara leið­rétt­ing miðað við þessar nýju aðstæð­ur.“

Auglýsing
Nú sé þessi hætta á ofrisi krón­unnar væri lið­inn hjá og ef eitt­hvað væri þá væri krónan aðeins fyrir neðan jafn­vægi sitt. Margt styðji það, til dæmis við­skipta­af­gangur á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra og góð staða við útlönd þar sem eignir Íslands eru meiri en skuld­ir. „Það sem væru þá áhyggj­urnar ef það kæmu við­bót­ar­vænt­ingar um það að verð­bólgan væri að fara hér af stað, að gengið væri að fara að gefa eftir og efna­hags­legur óstöð­ug­leiki. Það er nátt­úru­lega margt sem getur gerst. Það er ekki búið að lenda kjara­samn­ingum og maður veit ekki hvernig það verð­ur. Horfur í flug­rekstr­inum eru enn ótrygg­ar.“ Það sé eng­inn efna­hags­legur óstöð­ug­leiki sem sé til staðar en raun­gern­ing hans gæti þó orð­ið. Ytri aðstæður gætu spilað þar inn í líka. Í upp­hafi síð­asta árs var tölu­verð bjart­sýni alþjóð­lega. Það hafi nú breyst eftir að við­skipta­stríð milli landa hafi raun­gerst. „Stærstu áhættu­þætt­irnir sem allir tala um á slíkum fundum eru ann­ars vegar við­skipta­á­tök á heims­mæli­kvarða og Brex­it.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent