Samtök atvinnulífsins munu höfða mál fyrir Félagsdómi til að fá úr því skorið hvort boðuð verkföll Eflingar sem samþykkt voru í gær séu lögleg. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það virðast vera sérstakt keppikefli Eflingar að láta reyna á mörk löglegra verkfalla og því sé eðlilegt að leita úrskurðar Félagsdóms.
Efast um lögmæti örverkfalla
Í fréttatilkynningu á vef Samtaka atvinnulífsins segir að samtökin efist um lögmæti svokallaðra örverkfalla og vinnutruflana sem Efling hefur skipulagt. Þar sem markmiðið sé að fólk mæti til vinnu en sinni ekki tilteknum starfsskyldum. Dæmi um það sé vinnustöðvun sem felur í sér að starfsmaður á hóteli þrífi ekki tiltekin svæði eða hópbifreiðastjóri skoði ekki farmiða farþega. Ekki verði skilið á milli aksturs og þess að hleypa farþegum inn í hópbifreið.
Samtökin telja það jafnframt óheimilt að boða verkföll sem hafi í för með sér að félagsmaður gerist brotlegur við lög, til dæmis umferðarlög. Dæmi um það sé að bifreiðarstjóri stöðvi bifreið kl. 16.00 eða dæli ekki eldsneyti á bifreið, sem getur haft í för með sér að bifreið stöðvist og leiði hugsanlega til ábyrgðar bifreiðarstjóra. Sama eigi við ef bifreiðarstjóri leggur ekki bifreið í stæði og stöðvar þannig umferð.
Í tilkynningunni segir jafnframt að það sé lagt til af hálfu Eflingar að starfsmenn hliðri til reglubundnum störfum sínum eftir því sem þörf krefur til að þeim sé unnt að dreifa kynningarefni frá Eflingu. „Það er ekki hlutverk stéttarfélaga að fela verkfallsmönnum verkefni á vinnudegi og önnur falli niður á sama tíma,“ segir í tilkynningunni.
„Með þessu er Efling að marka skörp og illverjandi skil í þróun verkfallsréttar og beitingar hans. Það virðist vera sérstakt keppikefli Eflingar að láta reyna á mörk löglegra verkfalla og eðlilegt því að leita úrskurðar Félagsdóms,“ er haft eftir Halldóri Benjamín í fréttatilkynningunni.