Þorgerður Katrín: Landsréttur settur í uppnám

Formaður Viðreisnar segir að nú þurfi að setja almannahagsmuni framar sérhagsmunum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Auglýsing

„Það ríkir óvissa í íslensku rétt­ar­kerfi – og það að óþörfu. Lands­rétt­ur, ein dýr­mætasta rétt­ar­bót síð­ari ára, hefur verið settur í upp­nám. Það er því afar erfitt að fylgj­ast með dóms­mála­ráð­herra fara fjalla­baks­leiðir til að tor­tryggja nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóms­stóls­ins, sem við Íslend­ingar vel að merkja höfum aldrei áður áfrýj­að,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag.

Meiri­hluti Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu komst að þeirri nið­ur­stöðu sem birt var í morgun að skipan Lands­rétt­ar­dóm­ara bryti gegn 6. grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu þar sem kveðið er á um rétt ein­stak­linga til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi.

Sig­ríður Á. And­er­­sen dóms­­mála­ráð­herra telur dóm Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu ekki vera til­­efni til þess að segja af sér en hinir ýmsu þing­menn hafa kraf­ist afsagnar henn­ar. Í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar í dag sagð­ist ­hún áfram njóta trausts hjá rík­­is­­stjórn­­inni allri og hefur því ekki í hyggju að segja af sér­. Hún sagði dóm­inn bæði ver­a ó­væntan og for­­dæma­­lausan og þá komi líka á óvart að dóm­­ur­inn hefði klofnað í afstöðu sinni til máls­ins.

Auglýsing

Dóms­­mála­ráð­herra sagði jafn­­framt að verið væri að greina málið en benti á að dóm­­ur­inn væri afar yfir­­­grips­­mik­ill. Hún sagði dóm­inn kunna að hafa áhrif um alla Evr­­ópu. Auk þess sagði Sig­ríður að það væri mat bæði sér­­fræð­inga í dóms­­mála­ráðu­­neyt­inu og hjá rík­­is­lög­­manni að það væri til­­efni til að skoða vand­­lega og alvar­­lega hvort ekki væri hægt að skjóta nið­­ur­­stöð­unni til yfir­­­dóms­ins en slíkt þarf ríkið að gera innan þriggja mán­aða.

Óásætt­an­legt og óaf­sak­an­legt

Þor­gerður Katrín segir á Face­book að nú virð­ist dóms­mála­ráð­herra ætla sér að við­halda óviss­unni í marga mán­uði eða jafn­vel ár með því að halda mál­inu áfram. Það sé óásætt­an­legt og óaf­sak­an­legt. Í stað þess að við­ur­kenna af auð­mýkt grafal­var­lega stöðu máls­ins og ætla sér að gera eitt­hvað í því og það strax.

„Við þurfum að setja almanna­hags­muni framar sér­hags­mun­um. Í því felst að þingið verði þvert á flokka, að koma að mál­inu og vinna það hratt og vel. Til að vernda rétt­ar­rík­ið, láta dóms­kerfið virka og eyða þeirri óvissu sem nú er uppi um Lands­rétt. Þar liggur okkar ábyrgð og er mik­il­væg­asta verk­efni okkar allra á Alþingi núna eftir nið­ur­stöðu dóms­ins. Póli­tískur ein­streng­ings­háttur né skot­grafir eru það ekki. Það þarf að leysa úr mál­inu – og það strax,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

Það ríkir óvissa í íslensku rétt­ar­kerfi – og það að óþörfu. Lands­rétt­ur, ein dýr­mætasta rétt­ar­bót síð­ari ára, hef­ur...

Posted by Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir on Tues­day, March 12, 2019


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent