Félagsdómur hefur úrskurðað örverkföll Eflingar ólögleg. Efling stéttarfélag segir í yfirlýsingu að niðurstaðan sé vonbrigði, en verkföllin áttu að hefjast 18. mars.
„Það er miður að félagsmenn okkar fái ekki að nýta verkfallsréttinn til fulls. Þessar aðgerðir eru hófsamar og byggja á stigmögnun frekar en að til fullra áhrifa komi strax,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, í tilkynningu. „En við hlítum að sjálfsögðu þessum dómi og lærum af honum.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að Efling sé ekki að boki dottin þrátt fyrir niðurstöðuna, en félagsmenn Eflingar eru um 27 þúsund talsins, samkvæmt upplýsingum á vef félagsins. „Við erum hvergi af baki dottin og höldum ótrauð áfram með hefðbundin verkföll sem boðuð hafa verið og hefjast næstkomandi föstudag,“ segir Sólveig Anna.
Í boðuðum aðgerðum stóð til að starfsmenn myndu leggja niður venjubundna vinnu sína að einhverju leyti eins og ítarlega var útfært í verkfallasboðunum og tilkynnt um. „Sameiginlegt markmið
aðgerðanna er að knýja á um gerð nýrra kjarasamninga við stefnanda,“ segir í tilkynningu frá Eflingu.