Ingimundur hættir hjá Íslandspósti

Forstjóri Íslandspósts hættir eftir fjórtán ára starf.

Mynd_Ingimundur Sigurpálsson.jpg
Auglýsing

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, hefur sagt starfi sínu lausu sem for­stjóri eftir fjórtán ára starf. 

Í yfir­lýs­ingu frá Ingi­mundi segir hann að frum­varp sem Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu­ráð­herra, hefur mælt fyr­ir, taki á lagaum­hverfi póst­þjón­ust­unnar og mik­il­vægt sé að nýr for­stjóri komi að og fái svig­rúm til að leiða póst­þjón­ust­una inn í nýja tíma. 

Eins og greint var frá fyrr í dag, tap­aði Íslands­póstur 293 millj­ónum króna í fyrra, sem var um 500 millj­ónum lak­ari afkoma en árið á und­an.

Auglýsing

Launa­skrið hjá Íslands­pósti hefur verið afar umdeilt, en laun Ingi­mundar hækk­uðu um 43 pró­sent á einu ári. Fjallað var ítar­lega um það í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans 6. mars síð­ast­lið­inn.

Yfir­lýs­ing Ingi­mundar fer hér að neð­an:

„Sam­göngu­ráð­herra hefur á Alþingi mælt fyrir frum­varpi að nýjum lögum um póst­þjón­ustu.

Með nýjum póst­lögum verða miklar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi póst­þjón­ust­unnar og munu

þau mjög lík­lega hafa víð­tæk áhrif á rekstur Íslands­pósts. Frum­varpið gerir ráð fyrir afnámi

einka­réttar rík­is­ins á dreif­ingu árit­aðra bréfa og þar er jafn­framt opnað fyrir mögu­leika á

fjár­mögnun á þeim hluta lög­bund­innar póst­þjón­ustu, sem ekki stendur undir kostn­aði

tengdum henni. Mik­il­vægt er að nýr for­stjóri fái mögu­leika á því að koma að og móta

und­ir­bún­ing nauð­syn­legra breyt­inga, sem óhjá­kvæmi­lega fylgja gild­is­töku hinna nýju laga í

árs­byrjun 2020, og hafi þá jafn­framt mögu­leika á að fylgja þeim eft­ir.

Það hefur verið mjög áhuga­vert, gef­andi og krefj­andi að koma að rekstri Íslands­pósts

und­an­farin fjórtán ár. Á ýmsu hefur gengið í rekstri félags­ins á þessu tíma­bili, einkum eftir

efna­hags­hrunið 2008, en í kjöl­far þess hefur bréfum fækkað veru­lega. Á sama tíma hefur

verið unnið að viða­miklum breyt­ingum á rekstri félags­ins, sem fylgt hafa miklum sam­drætti í

bréfa­send­ingum á sama tíma og pökkum og þyngri send­ingum hefur fjölgað umtals­vert. Þá

hefur veru­leg hag­ræð­ing náðst með marg­vís­legum umbótum í rekstri félags­ins sem og

fækkun póst­af­greiðslna og dreif­ing­ar­stöðva jafn­hliða end­ur­bótum á allri aðstöðu fyrir

við­skipta­vini og starf­menn fyr­ir­tæk­is­ins.

Á þessum tíma­mótum er mér efst í huga þakk­læti fyrir að hafa fengið tæki­færi til þess að

vinna hjá traustu og öfl­ugu fyr­ir­tæki með starfs­stöðvar um allt land og í víð­tækum

alþjóð­legum sam­skipt­um. Það er ómet­an­legt að hafa átt kost á að vinna með kraft­miklu og

frá­bæru fólki, sem hefur lagt sig fram um að vinna af vand­virkni og heil­indum og skila

fram­úr­skar­andi starfi. Ég er þakk­látur fyrir það sem áunn­ist hefur og þó að enn hafi ekki

tek­ist að ná fram fullri við­ur­kenn­ingu á því að stærsti við­skipta­vinur Íslands­pósts greiði fyrir

þá þjón­ustu, sem fyrir hann er sinnt, þá vænti ég þess og treysti að með nýjum póst­lögum

verði vel fyrir því séð. Ég þakka sam­starfs­fólki ómet­an­leg sam­skipti og fram­úr­skar­andi

sam­starf og sömu­leiðis þakka ég stjórn­ar­mönnum félags­ins í áranna rás fyrir góða sam­vinnu,

traust og stuðn­ing.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent