Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, hefur sagt starfi sínu lausu sem forstjóri eftir fjórtán ára starf.
Í yfirlýsingu frá Ingimundi segir hann að frumvarp sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, hefur mælt fyrir, taki á lagaumhverfi póstþjónustunnar og mikilvægt sé að nýr forstjóri komi að og fái svigrúm til að leiða póstþjónustuna inn í nýja tíma.
Eins og greint var frá fyrr í dag, tapaði Íslandspóstur 293 milljónum króna í fyrra, sem var um 500 milljónum lakari afkoma en árið á undan.
Launaskrið hjá Íslandspósti hefur verið afar umdeilt, en laun Ingimundar hækkuðu um 43 prósent á einu ári. Fjallað var ítarlega um það í fréttaskýringu á vef Kjarnans 6. mars síðastliðinn.
Yfirlýsing Ingimundar fer hér að neðan:
„Samgönguráðherra hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi að nýjum lögum um póstþjónustu.
Með nýjum póstlögum verða miklar breytingar á fyrirkomulagi póstþjónustunnar og munu
þau mjög líklega hafa víðtæk áhrif á rekstur Íslandspósts. Frumvarpið gerir ráð fyrir afnámi
einkaréttar ríkisins á dreifingu áritaðra bréfa og þar er jafnframt opnað fyrir möguleika á
fjármögnun á þeim hluta lögbundinnar póstþjónustu, sem ekki stendur undir kostnaði
tengdum henni. Mikilvægt er að nýr forstjóri fái möguleika á því að koma að og móta
undirbúning nauðsynlegra breytinga, sem óhjákvæmilega fylgja gildistöku hinna nýju laga í
ársbyrjun 2020, og hafi þá jafnframt möguleika á að fylgja þeim eftir.
Það hefur verið mjög áhugavert, gefandi og krefjandi að koma að rekstri Íslandspósts
undanfarin fjórtán ár. Á ýmsu hefur gengið í rekstri félagsins á þessu tímabili, einkum eftir
efnahagshrunið 2008, en í kjölfar þess hefur bréfum fækkað verulega. Á sama tíma hefur
verið unnið að viðamiklum breytingum á rekstri félagsins, sem fylgt hafa miklum samdrætti í
bréfasendingum á sama tíma og pökkum og þyngri sendingum hefur fjölgað umtalsvert. Þá
hefur veruleg hagræðing náðst með margvíslegum umbótum í rekstri félagsins sem og
fækkun póstafgreiðslna og dreifingarstöðva jafnhliða endurbótum á allri aðstöðu fyrir
viðskiptavini og starfmenn fyrirtækisins.
Á þessum tímamótum er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að
vinna hjá traustu og öflugu fyrirtæki með starfsstöðvar um allt land og í víðtækum
alþjóðlegum samskiptum. Það er ómetanlegt að hafa átt kost á að vinna með kraftmiklu og
frábæru fólki, sem hefur lagt sig fram um að vinna af vandvirkni og heilindum og skila
framúrskarandi starfi. Ég er þakklátur fyrir það sem áunnist hefur og þó að enn hafi ekki
tekist að ná fram fullri viðurkenningu á því að stærsti viðskiptavinur Íslandspósts greiði fyrir
þá þjónustu, sem fyrir hann er sinnt, þá vænti ég þess og treysti að með nýjum póstlögum
verði vel fyrir því séð. Ég þakka samstarfsfólki ómetanleg samskipti og framúrskarandi
samstarf og sömuleiðis þakka ég stjórnarmönnum félagsins í áranna rás fyrir góða samvinnu,
traust og stuðning.“