Staðan í Brexit er grafalvarleg

Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að það sé engin lausn enn sem komið er komin fram á því hvernig sé hægt að leysa Brexit-hnútinn.

Screen Shot 2019-03-15 at 15.55.58.png
Auglýsing

„Það veit eng­inn almenni­lega hvernig þetta fer. Staðan er grafal­var­leg. Það er engin leið að líta fram­hjá því að það eru tvær vikur þangað til að þeir eiga að fara út úr Evr­ópu­sam­band­inu. Og það er engin lausn ennþá á því hvernig það mun fara.“

Þetta sagði Eiríkur Berg­­mann Ein­­ar­s­­son, pró­­fessor í stjórn­­­mála­fræði, um stöð­una á Brex­it, útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­in­u,í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­­son­­ar, rit­­stjóra Kjarn­ans, í þætt­in­um. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neð­an.



Breska þingið hefur tví­vegis hafnað útgöngu­samn­ingi sem Ther­esa May for­sæt­is­ráð­herra lands­ins hefur lagt fyrir það. Auk þess hafn­aði það í vik­unni því að ganga út úr sam­band­inu án samn­ings og að óska eftir frestun á útgöngu, en útgöngu­dagur Breta er settur 29. mars næst­kom­andi.

Eiríkur sagði þetta alveg ótrú­lega stöðu fyrir breska þjóð­þingið að vera í. „Og fyrir bresku þjóð­ina alla og það er óljóst hvernig þeir geta kom­ist út úr þessu.“

Auglýsing
Hann sagði flókið að fresta útgöng­unni, sem nú hefur verið sam­þykkt að gera. Það væri til að mynda algjör­lega fárán­legt að fresta henni fram yfir Evr­ópu­þings­kosn­ingar sem fara fram 23 til 26 maí næst­kom­andi. „Þá verða Bretar lögum sam­kvæmt að fara í þá atkvæða­greiðslu og kjósa full­trúa á Evr­ópu­þingið sem eiga að taka þátt í að setja Evr­ópu­sam­band­inu lög og dreifa út fjár­munum þess fyrir næstu fimm árin án þess að verða þar áfram. Það gerir málið mjög erfitt.“

Eiríkur greindi frá því að hann hefði heyrt skemmti­lega kenn­ingu innan úr breska Íhalds­flokkn­um, þar sem menn væru að velta því fyrir sér að Ther­esa May gætti staðið frammi fyrir því að hrein­lega aft­ur­kalla úrsögn­ina. „Þá er málið komið á núll­punkt og hún þyrfti eflaust að segja af sér og boða til nýrra kosn­inga.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent