Fast leiguverð til sjö ára

Alma er ný þjón­usta á leigu­markaði í eigu Almenna leigufélagsins þar sem leigj­end­um er gef­inn kost­ur á leigu til allt að sjö ára á föstu leigu­verði sem á ein­ung­is að vera tengt vísi­tölu neyslu­verðs.

24216414821_774b5e8eb2_o.jpg
Auglýsing

Almenna leigu­fé­lagið hefur ákveðið að bjóða við­skipta­vinum sínum upp á nýja þjón­ustu á leigu­mark­aði þar sem leigj­endum er gef­inn kostur á leigu til allt að sjö ára á föstu leigu­verði sem sé ein­ungis tengt vísi­tölu neyslu­verðs. Nýja þjón­ustan heitir Alma og segir í til­kynn­ingu frá félag­inu að Alma bjóði áður „óþekkt hús­næð­is­ör­yggi“ á íslenskum leigu­mark­aði. Sjóður sem á Almenna leigu­fé­lags­ins er í stýr­ingu hjá GAMMA, sem jafn­framt er í eigu Kviku.

Samn­ing­arnir gerðir í eitt ár í senn

Í til­kynn­ingu frá­ Al­menna leigu­fé­lagið segir að félagið hafi unnið að þess­ari nýju þjón­ustu um nokk­urt skeið en í nýju samn­ing­unum felst leigu­ör­yggi til allt að sjö ára. ­Samn­ing­arnir verða gerðir til árs í senn en að ári liðnu hefur leigj­and­inn ein­hliða rétt á að fram­lengja samn­ing­inn um annað ár. Leigj­andi getur fram­lengt allt að sex sinnum eða í allt að sjö ár. „Þegar samn­ing­ur er fram­­lengd­ur kem­ur ekki til neinn­ar hækk­­un­ar á leig­u­verði um­fram breyt­ing­ar á vísi­­tölu neyslu­verðs og er því leig­u­verð tryggt til allt að sjö ára.“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Nýjir eig­u­­samn­ing­ar Ölmu standa til boða öll­um nýj­um við­skipta­vin­um frá 19. mars næst­kom­andi , auk þess sem öðrum við­skipta­vin­um verður boðið að skipta yfir þegar þeirra samn­ing­ar renna út, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Jafn­framt verði áfram boðið upp á styttri leig­u­­samn­inga með styttri upp­sagn­ar­fresti.

Auglýsing

Sam­mála um að breyt­inga væri þörf á íslenskum leigu­mark­aði

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mað­ur­ VR, mót­mælti fyrr í mán­uð­inum fyr­ir­hug­uðum hækk­unum á leigu hjá Almenna leigu­fé­lag­inu með því að hóta að taka út rúma 4 millj­arða króna sem VR á í stýr­ingu hjá Kviku. Eftir fundi milli for­manns VR­ og fram­kvæmda­stjóra Almenna leigu­fé­lags­ins var ákveðið að falla frá hækk­un­inn­i. 

Í til­kynn­ing­unni frá félag­inu segir að for­svars­menn Almenna leigu­fé­lags­ins og VR­ hafi verið sam­mála um að breyt­inga væri þörf á íslenskum ­leigu­mark­að­i þar sem háir vextir þrýsti á leigu­verð, hvort sem það sé í félags­lega kerf­inu eða á hinum almenna mark­aði. Auk þess hafi for­svars­menn félag­anna verið sam­mála  um að mik­il­vægt væri að ís­­lensk­ir líf­eyr­is­­sjóðir og aðrir lang­­tíma­fjár­­­fest­ar kæmu með öfl­­ug­um hætti að fjár­­­mögn­un ­leigu­fé­laga til þess að skapa grund­­völl fyr­ir lægri leigu, stöðugra leig­u­um­hverfi og aukið hús­næð­is­ör­yggi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent