Ingimundur Sigurpálsson er hættur sem stjórnarformaður ISAVIA, en Orri Hauksson, forstjóri Símans, kom nýr inn í stjórn félagsins í hans stað.
Aðrir í stjórn eru Matthías Imsland, Eva Baldursdóttir, Nanna Gunnlaugsdóttir og Valdimar Halldórsson.
Ársfundur Isavia fór fram í dag, og tilkynnti Ingimundur þar um áform sín um að hætta, en hann hætti einnig sem forstjóri Íslandspósts á dögunum, eftir fjórtán ára starf fyrir fyrirtækið.
Auglýsing
Forstjóri Isavia er Björn Óli Hauksson en íslenska ríkið á Isavia, sem á og rekur flugvellina í landinu. Eigið fé félagsins um mitt ár í fyrra nam 32,5 milljörðum króna.