Eigendur skuldabréfa WOW air eru tilbúnir að gefa eftir skuldir gegn því að verða eigendur 49 prósent hlutafjár í félaginu, að því er fram kom á mbl.is í kvöld.
Fór fram fundur fyrr í kvöld þar sem þessi atriði voru meðal annars rædd. Félagið þarf nauðsynlega á fjárfestingu að halda, sem allra fyrst, en rætt hefur verið um að félagið þurfi minnst um 40 milljónir Bandaríkjadala, eða um 5 milljarða króna, til að styrkja efnahag sinn, í það minnsta til skamms tíma.
Eins og komið hefur fram í dag, þá reynir Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, nú allt til að bjarga félaginu frá gjaldþroti, en staða félagsins er fallvölt.
Í fréttaskýringu á vef Kjarnans í dag, segir að kapp sé lagt á það að styrkja fjárhagsstöðu félagsins með því að grynnka á skuldum - með því að umbreyta þeim í hlutafé - og fá inn meira fjármagn til rekstrarins.
Þetta er hins vegar kapp við tímann, þar sem fjárhagsstaðan er erfið og mánaðarmót framundan, sem kosta félagið mörg hundruð milljónir króna, þar sem greiða þarf laun og standa við aðrar skuldbindingar.
Félagið tapaði 22 milljörðum króna í fyrra, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið birti í morgun.
Forsvarsmen WOW air hafa varist frétta í dag, og ekki gefið færi á því að veita upplýsingar, og þá hefur ekki náðst í Þórólf Árnason, forstjóra Samgöngustofu, en hún gefur út flugrekstrarleyfi og hefur eftirlit með þeim félögum sem það hafa.