Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri VÍS. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VÍS. Hann mun hefja störf í byrjun apríl.
Óskar tekur við af Andra Ólafssyni sem hverfur til starfa á öðrum vettvangi.
Óskar Hrafn hefur áralanga reynslu af fjölmiðlum, var meðal annars fréttastjóri á Stöð2, Vísi.is og DV. Hann var um tíma yfirmaður Stöðvar 2 Sport en hefur að mestu unnið sjálfstætt sem ráðgjafi undanfarin misseri.
Hjá VÍS mun Óskar Hrafn stýra miðlun upplýsinga til fjölmiðla og markaðsaðila. Til viðbótar mun hann bera ábyrgð á mótun ófjárhagslegrar upplýsingagjafar og samfélagsábyrgð félagsins.
Auglýsing