Alvarlegt að einn starfsmaður hafi tekið ákvörðun um að stöðva umfjöllun

Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður segir að það sé verið að vega og meta hvort að Stundin og Reykjavik Media stígi einhver fleiri skref vegna lögbannsmálsins svokallaða. Í málinu var lögbanni beitt til að stöðva umfjöllun um þáverandi forsætisráðherra.

Sigríður Rut Júlíusdóttir
Auglýsing

„Gagn­vart mínum skjól­stæð­ingum þá erum við bara að vega og meta,“ sagði Sig­ríður Rut Júl­í­us­dótt­ir, lög­maður Stund­ar­innar og Reykja­vík Media, um hvort að fleiri skref á borð við skaða­bóta­mál verði stigin vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar fyrir rúmri viku í lög­banns­mál­inu svo­kall­aða.

Í dómn­um, sem féll 22. mars síð­ast­lið­inn, var öllum kröfum Glitn­is­HoldCo um að hefta tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðl­anna til að vinna efni úr gögnum sem áttu upp­runa sinn innan úr kerfum Glitnis í mál­inu hafn­að.

Sig­ríður Rut var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í lið­inni viku og ræddi þar dóm Hæsta­rétt­ar.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Sig­ríður Rut sagði í þætt­inum sagði  að henni fynd­ist rétt að taka fram að fyrir liggi laga­frum­varp sem muni breyta aðgerðum eins og þeim sem beitt var í mál­inu. Ef ein­hver fer fram á lög­bann á tján­ingu þá mun ákvörðun um málið fær­ast frá sýslu­manni og til dóm­stóla verði frum­varpið að lög­um.

Þrír hlutir hafi verið að í því máli sem Hæsti­réttur dæmdi nýverið í. Í fyrsta lagi að starfs­maður fram­kvæmda­valds­ins hefði tekið ákvörðun um að stöðva umfjöll­un­ina. Eng­inn dóm­stóll á nokkru stigi féllst á neinar kröfur um lög­bann­ið. „Þarna var einn starfs­maður sem tók þessa ákvörðun og stopp­aði þessa umfjöllun í heilt ár. Það er mjög alvar­leg­t.“

Nú sé hins vegar búið að lag­færa þetta í fram­komnu frum­varpi þannig að málið fari strax til dóm­stóla.

Auglýsing
Í öðru lagi gerir hún athuga­semd við tíma­lengd­ina. „Þetta ár sem fer í þetta.[...]Lög­bannið var lagt á í októ­ber og féll niður lögum sam­kvæmt þegar Lands­réttur stað­festi dóm hér­aðs­dóms að það væri ekki lög­leg­t.“

Hún bindur vonir við það að frum­varpið lag­færði máls­með­ferð­ina og tím­ann sem fer í það.

Í þriðja lagi gerir hún athuga­semd við aðferð­ar­fræð­ina í mál­inu. Það eigi ekki að gilda sömu sjón­ar­mið um óþekktan borg­ara og ráð­herra sem sé í fram­boði. „Þú getur ekki lagt þetta að jöfnu innan sömu dóm­kröf­unn­ar.“

Í mál­inu hafi dóm­krafan verið allt og víð­tæk vegna þess að það var verið að krefj­ast þess að allt sem hugs­an­lega gæti verið í gögnum Glitnis væri bann­að.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent