Frítekjumark námsmanna hækkar um 43 prósent og fer úr 930.000 krónum á ári í 1.330.000 krónur, samkvæmt nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir námsárið 2019 til 2020. Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir að þessi hækkun komi til móts við óskir námsmanna sem bent hafa á að frítekjumarkið hafi ekki verið hækkað í takt við verðlagsbreytingar og launahækkanir síðan árið 2014.
30 prósent niðurfelling á hluta af námslánum við prófgráðu
Í tilkynningunni segir að umfangsmiklar kerfisbreytingar séu fyrirhugaðar á fyrirkomulagi LÍN en ráðgert sé að nýtt frumvarp um sjóðinn verði lagt fram á Alþingi í haust. Kerfisbreytingarnar felast meðal annars í því að námsstyrkur ríkisins verði gagnsærri og meira jafnræði verði meðal námsmanna og muni nýja kerfinu þannig svipa meira til norrænna námsstyrkjakerfa. Samkvæmt tilkynningunni er stefnt að því að nýtt stuðningskerfi taki gildi frá og með haustinu 2020.
Námsaðstoðin sem sjóðurinn mun veita verður áfram í formi lána á hagstæðum kjörum og til viðbótar verða beinar styrkjagreiðslur vegna framfærslu barna og 30 prósent niðurfelling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma.
Í tilkynningunni segir að þetta sé gert til þess að bæta fjárhagsstöðu nemenda, ekki síst þeirra sem hafa börn á framfæri, og hvetja nemendur til að klára nám sitt á tilsettum tíma. „Í því felst ávinningur fyrir námsmenn sem og þjóðhagslegur ávinningur fyrir samfélagið allt sem útreikningar gera ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 milljörðum kr. á ári, “ segir í tilkynningunni.