Telja erindi ekki gefa nægilegt tilefni til frekari athugunar

Forsætisnefnd hefur afgreitt erindi sem henni barst um meint brot Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á siðareglum fyrir alþingismenn í tilefni af ummælum hans í fréttaviðtali í kvöldfréttum RÚV 3. desember 2018 og síðari samskipti af því tilefni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Auglýsing

For­sætis­nefnd, skipuð 7. og 8. vara­for­seta, þeim Stein­unni Þóru Árna­dóttur og Har­aldi Bene­dikts­­syni, afgreiddi á fundi sínum þann 25. mars síð­ast­lið­inn erindi sem henni barst um meint brot Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, alþing­is­manns og for­manns Mið­flokks­ins, á siða­reglum fyrir alþing­is­menn í til­efni af ummælum hans í frétta­við­tali í kvöld­fréttum Rík­is­út­varps­ins 3. des­em­ber 2018 og síð­ari sam­skipti af því til­efni. Í erind­inu var vísað til þess að hátt­erni þing­manns­ins hafi verið and­stætt 5., 7. og 8. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn.

Nið­ur­staða for­sætis­nefndar er sú að erindið gefi ekki nægi­legt til­efni til frek­ari athug­un­ar, sbr. 1. máls­lið 1. mgr. 18. gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn.

Í erindi máls­hefj­anda, sem ekki er nafn­greind­ur, vísar hann til þess að í við­tal­inu hafi þing­mað­ur­inn haldið því fram að sam­töl af því tagi sem hljóð­rituð voru, „... þar sem alþing­is­menn níða og nið­ur­lægja aðra þing­menn á óvið­eig­andi og klám­feng­inn hátt, væru og hefðu um langa hríð verið alsiða meðal þing­manna allra flokka og að orð­bragðið væri stundum jafn­vel „tölu­vert gróf­ara““ Hafi þing­mað­ur­inn með þessum orðum sínum brotið gegn hátt­ern­is­skyldum sínum og þeim meg­in­reglum sem gilda um hátt­erni alþing­is­manna sam­kvæmt siða­reglum fyrir alþing­is­menn.

Auglýsing

For­sætis­nefnd athug­aði frétt RÚV frá téðum degi, 3. des­em­ber 2018 þar sem fyr­ir­sögnin var „Orð­ræða sex­menn­ing­anna óverj­and­i“. Fréttin hefst á því að farið var yfir við­brögð for­seta Alþingis á þing­fundi fyrr um dag­inn, þar sem hann hafi „[beð­ið] þjóð­ina alla afsök­unar á óráðs­hjali þing­manna á barnum Klaustri ...“. Þá var greint frá „raf­magn­aðri stemn­ingu“ í þing­sal við upp­haf þing­fund­ar, að tveir þing­menn Mið­flokks­ins hafi farið í leyfi og þing­menn­irnir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son væru orðnir óbreyttir þing­menn. Þar á eftir kom við­talið við Sig­mund Dav­íð, þar sem hann var kraf­inn við­bragða við atburðum dags­ins og spurður um afstöðu sína til þeirra ummæla sem fjöl­miðlar höfðu greint frá á hljóð­upp­tök­um. Í svörum sínum vís­aði hann meðal ann­ars til reynslu sinnar af hátt­erni og ummælum ann­arra þing­manna og að gæta beri sam­ræm­is, en jafn­framt að slíkt rétt­læti ekki þau ummæli sem við­höfð hafi ver­ið. Ummæli þing­manns­ins fólu í sér, sam­kvæmt for­sætis­nefnd, full­yrð­ingar um atvik, án frek­ari til­grein­ing­ar, sem hann telur að hann hafi sjálfur upp­lif­að.

Að mati for­sætis­nefndar fólust í ummælum Sig­mundar Dav­íðs stað­hæf­ingar um atvik, sem hann full­yrti að hefðu verið sam­bæri­leg þeim sem fjöl­miðlar hefðu með ítar­legum hætti fjallað um í hljóð­upp­tök­un­um. „Líta verður til þess að ummælin fólu í sér andsvör hans við þeirri umfjöll­un. Þegar það er virt og við hvaða aðstæður þau voru látin falla er ekki unnt að full­yrða að hátt­erni þing­manns­ins hafi verið and­stætt hátt­ern­is­skyldum hans,“ segir í nið­ur­stöðu nefnd­ar­inn­ar.

Hægt er að lesa nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent