Stéttarfélagið Efling fordæmir harðlega þá ákvörðun Icelandair hotels að draga laun af starfsmönnum vegna verkfalla sem þeir tóku ekki þátt í. Í tilkynningu frá stéttarfélaginu er skorað á hótelkeðjuna að leiðrétta mistökin tafarlaust. Efling gerir þá kröfu að Icelandair hotels bæti starfsmönnunum upp launamissinn ásamt dráttarvöxtum og veita þeim jafnframt afsökunarbeiðni. Verði hótelkeðjan ekki við þeirri kröfu þá fari stéttarfélagið með málið fyrir dóm.
Drógu laun af starfsfólki óháð því hvort að starfsmaður hafi verið á vakt
Icelandair hotels drógu tveggja daga laun af öllum starfsmönnum hótelanna sem vinna störf sem féllu undir verkfallsaðgerðir stéttarfélaganna VR og Eflingar dagana 8. mars og 22. mars, óháð því hvort þeir voru á vakt þá daga eða ekki.
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair hotels, sagði í skriflegu svari til Fréttastofu RÚV að stéttarfélögin hefðu staðfest að félagsmenn þeirra sem voru í verkfalli gætu sótt launagreiðslur fyrir sömu daga í verkfallssjóð félaganna. Hún sagði að dregið hafi verið af launum í samræmi við kjör hvers og eins og að fyrirtækið telji þennan frádráttinn lögum samkvæmt.
Skýringar hótelsins standast enga skoðun
Í tilkynningunni frá Eflingu segir að stéttarfélagið hafni alfarið tilraunum hótelkeðjunnar til að skjóta sér undan ábyrgð á málinu. „Fulltrúi keðjunnar hefur hermt upp á starfsmenn að þeir hafi sagst eiga rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóði þótt þeir hafi ekki verið við störf. Slíkt á sér enga stoð í veruleikanum. Efling gaf út ítarlegar skriflegar leiðbeiningar um rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóðum og þar kemur slíkt hvergi fram. Skýringar hótelsins standast því enga skoðun og eru yfirklór,“ segir í tilkynningunni.
Efling mun því gera kröfu á Icelandair Hotels að greiða starfsmönnunum sem ekki voru á vakt laun og ef ekki verður orðið við henni þá verði farið með málið fyrir dóm.
„Það er verið að hafa laun upp á 12 til 25 þúsund krónur af fólki sem er á lægstu laununum. Það er hreint með ólíkindum að hótelkeðjan skuli grípa til þessara ráðstafana og við munum bregðast við af fullri hörku, “ er haft eftir Viðari Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Eflingar í tilkynningunni.